Fréttasafn
3. júní 2013
Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar tekin til starfa
Nánar
Þann 1. júní sl. tók gildi reglugerð innanríkisráðuneytisins nr. 475/2013 um starfsemi netöryggissveitar innan Póst- og fjarskiptastofnunar, CERT-ÍS. Starfsemi sveitarinnar er þar með formlega hafin. Markmiðið með starfsemi netöryggissveitarinnar er að fyrirbyggja og draga úr hættu á netárásum og öðrum öryggisatvikum í netumdæmi hennar og sporna við og lágmarka tjón af þeim sökum á ómissandi upplýsingainnviði samfélagsins. Netumdæmi sveitarinnar nær til að byrja með til fjarskiptafyrirtækja sem reka almenn fjarskiptanet og/eða veita aðgang að internetinu og internetþjónustu, en ekki til almennra notenda. Einnig geta rekstraraðilar þeirra upplýsingakerfa sem teljast til ómissandi upplýsingainnviða gert þjónustusamninga við sveitina. Ómissandi upplýsingainnviðir eru til dæmis kerfi sem tryggja eiga þjóðaröryggi, almannaheill og margs konar öflun aðfanga sem nauðsynleg eru í nútíma samfélagi og verða þeir nánar skilgreindir af ríkislögreglustjóra. Netöryggissveitin mun greina og meta öryggisatvik innan netumdæmis síns, leiðbeina og eftir atvikum leiða viðbrögð og vera samhæfingaraðili þegar um stærri atvik er að ræða. Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar, CERT-ÍS er einnig tengiliður íslenskra stjórnvalda í alþjóðlegu samstarfi CERT netöryggissveita um viðbrögð og varnir vegna net- og upplýsingaöryggis. Sjá nánar á vef Stjórnartíðinda:Reglugerð um málefni CERT-ÍS netöryggissveitar nr. 475/2013 Sjá einnig vefsíðu sveitarinnar, www.cert.is
29. maí 2013
Úrskurðarnefnd staðfestir ákvörðun PFS
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur kveðið upp úrskurð sinn í máli nr. 7/2012 þar sem nefndin staðfestir ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 34/2012. Sjá úrskurðinn í heild:Úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í máli nr. 7/2012 - Íslandspóstur gegn Póst- og fjarskiptastofnun (PDF)
28. maí 2013
Tölfræðiskýrsla PFS um íslenskan fjarskiptamarkað 2012 komin út
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun birtir nú nýja tölfræðiskýrslu um íslenskan fjarskiptamarkað. Í skýrslunni er að finna ítarlegar upplýsingar um fjarskiptamarkaðinn fyrir árin 2010 – 2012. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, internetinu og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. Tölfræði um íslenska fjarskiptamarkaðinn 2012 (PDF) Valdir hlutar úr skýrslunni eru birtir á myndrænan og aðgengilegan hátt á Mælaborði fjarskiptamarkaðarins. Þar er einnig hægt að skoða tölfræði úr hálfsársskýrslunni sem út kom í nóvember sl. Sjá einnig bakgrunnsupplýsingar í Excel skjali og eldri skýrslur hér á vefnum.
24. maí 2013
Kallað eftir merkingum á farsíma í Evrópu með tilliti til móttökuhæfni þeirra
Nánar
Fjarskiptaeftirlitsstofnanir Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hafa farið þess formlega á leit, með bréfi til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að innleiddar verði merkingar á farsímtækjum með tilliti til hæfni þeirra til að nema merki frá fjarskiptasendum. Sameiginlegar merkingar í Evrópu myndu auka gagnsæi á markaði fyrir slík tæki og gera neytendum kleift að taka upplýsta ákvörðun við kaup á farsímum. Móttökugeta farsíma fer annars vegar eftir hæfni tækisins sjálfs og hins vegar eftir því hvernig notandinn heldur á símanum. Mikill munur getur verið á hæfni tækjanna til að taka á móti merkjum frá sendum. Þetta á ekki síst við um snjallsíma og hæfni þeirra til að taka á móti gögnum. Loftnet símans er mikilvægur þáttur í þráðlausum samskiptum og athuganir hafa sýnt að mikill munur er á virkni þeirra milli snjallsímagerða. Forstjórar fjarskiptaeftirlitsstofnana Íslands, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands, Eistlands, Lettlands og Litháen hittust á fundi í Noregi dagana 21. og 22. maí sl. þar sem þetta mál var rætt og var það niðurstaða fundarins að hér væri á ferðinni nauðsynlegt og mikilvægt skref til að auka gagnsæi fyrir neytendur. Á fundinum var einnig rætt um ýmsa aðra þætti fjarskiptamála, svo sem um þróun fjarskiptaneta í átt til aukinnar gagnaflutningsgetu, öryggi í fjarskiptum og útbreiðslu farneta. Bréf forstjóranna til framkvæmdastjórnar ESB (PDF) Sameiginleg fréttatilkynning (PDF)
23. maí 2013
Kröfu Símans um dráttarvexti hafnað í Hæstarétti
Nánar
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í október sl. þar sem íslenska ríkið og Póst- og fjarskiptastofnun til vara eru sýknuð af kröfu Símans hf. um greiðslu á dráttarvöxtum vegna meints greiðsludráttar á fjárframlagi að upphæð 163.233.277 kr. úr jöfnunarsjóði alþjónustu sem ákvarðað var með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskiptamála nr. 1/2007 frá 10. október 2007. Þegar fyrrnefndur úrskurður úrskurðarnefndar var kveðinn upp lá fyrir að ekki voru til fjármunir í jöfnunarsjóði alþjónustu til að inna gjaldið af hendi, heldur þurfti Póst- og fjarskiptastofnun að grípa til sérstakra ráðstafana og gera tillögu til ráðherra, um breytt gjaldhlutfall fjarskiptafyrirtækja í jöfnunarsjóð alþjónustu til að fjármagna umrædda útgreiðslu úr sjóðnum, sem hann síðan legði fram með frumvarpi til samþykktar á Alþingi. Samkvæmt dómi Hæstaréttar er það niðurstaða hans að túlka verði 3. mgr. 22. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 á þá leið að forsenda fyrir greiðslum úr jöfnunarsjóði alþjónustu sé sú að til sé fé í sjóðnum af innheimtu jöfnunargjaldi til að standa undir greiðslunum (þ.m.t. dráttarvöxtum), enda sé sá skilningur í samræmi við að í fyrirkomulagi sjóðsins felist innbyrðis jöfnun kostnaðar milli fjarskiptafyrirtækja. Var því ekki fallist á að lagalegar forsendur væru til staðar til þess samþykkja kröfu Símans hf. um dráttarvexti. Þetta er í annað sinn sem mál þetta kemur til úrskurðar í Hæstarétti, en með úrskurði hans í máli nr. 500/2010 var kröfu Símans hf. vísað frá héraðsdómi vegna skorts á aðildarhæfi jöfnunarsjóðs alþjónustu. Dóm Hæstaréttar Íslands nú má lesa í heild sinni á vef réttarins. Sjá dóm Hæstaréttar nr. 15/2013.
15. maí 2013
Samráð við ESA um markaðsgreiningu á smásölumörkuðum fyrir talsímaþjónustu
Nánar
Í gær sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) drög að ákvörðunum um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á smásölumarkaði fyrir aðgang að fasta almenna talsímanetinu fyrir heimili og fyrirtæki (markaður 1) og á smásölumörkuðum fyrir almenna talsímaþjónustu á fastaneti (markaðir 3-6 samkvæmt eldri tilmælum ESA). PFS hyggst útnefna Símann sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á smásölumarkaði fyrir aðgang að fasta almenna talsímanetinu fyrir heimili og fyrirtæki (markaður 1) og leggja viðeigandi kvaðir á félagið, þ.m.t. heildsöluaðgangskvaðir á borð við forval, fast forval og leigu á talsímalínu á heildsölustigi. Síðastgreind aðgangsleið gerir þjónustuveitendum í samkeppni við Símann kleift að gera viðskiptavinum sínum einn heildstæðan reikning fyrir bæði aðgengi að talsímakerfi Símans og talsímaþjónustu sem veitt er um það kerfi. Þá hyggst PFS m.a. leggja kvöð á Símann um kostnaðargreind verð fyrir umræddan aðgang. Umræddur markaður var áður greindur í árslok 2008 þar sem niðurstaðan var sú sama, sbr. ákvörðun PFS nr. 30/2008. Þá hyggst PFS afnema útnefningu Símans sem fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk á smásölumörkuðum fyrir almenna talsímaþjónustu á fastaneti (markaðir 3-6 samkvæmt eldri tilmælum ESA). Er þar um að ræða smásölumarkaði fyrir innlenda talsímaþjónustu, annars vegar til heimila og hins vegar til fyrirtækja, og erlenda talsímaþjónustu, bæði til heimila og fyrirtækja. Verða því engar kvaðir á þeim markaði. Umræddur markaður var síðast greindur í árslok 2008, sbr. ákvörðun PFS nr. 30/2008, og var Síminn þar útnefnt fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk, en engar smásölukvaðir voru þó lagðar á félagið. Drög að ofangreindum ákvörðunum voru send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu með vísan til 7. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur PFS formlega tekið ákvörðun um viðkomandi markaði nema fram komi óskir frá ESA um að PFS dragi ákvörðunardrögin til baka. Sjá nánar hér á vefnum: Upplýsingar og skjöl tengd samráðinu við ESA Upplýsingar um markaðsgreiningu
8. maí 2013
Nýtt á vef PFS: Upplýsingar um jarðvegsframkvæmdir veitufyrirtækja sem hugsanlega er hægt að samnýta fyrir lagningu fjarskiptavirkja
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun mun framvegis birta á vef sínum tilkynningar veitufyrirtækja um jarðvegsframkvæmdir á þeirra vegum sem hugsanlegt er að fjarskiptafyrirtæki geti samnýtt til að koma fyrir nýjum fjarskiptavirkjum. Verða tilkynningarnar einnig sendar með tölvupósti til netrekenda. Þessi nýja þjónusta stofnunarinnar er til komin vegna breytinga á fjarskiptalögum sem samþykktar voru í júní sl. Í 36. grein laganna, sem fjallar um aðskilnað sérleyfisstarfsemi frá fjarskiptastarfsemi, er fjarskiptafyrirtækjum gert heimilt, þar sem strjálbýli er og vegalengdir miklar, að að óska eftir samnýtingu við jarðvegsframkvæmdir veitufyrirtækja til að koma samhliða fyrir fjarskiptavirkjum. Fyrst og fremst eru það jarðlínulagnir á borð við ljósleiðara sem notið geta góðs af slíkum framkvæmdum, sem geta verið í formi skurða eða annars konar aðstöðu. Þegar um slíka samnýtingu er að ræða er gert ráð fyrir því að kostnaðarhlutdeild vegna fjarskiptahlutans sé einungis reiknuð sem viðbótarkostnaður við heildarkostnað framkvæmdanna. Veitufyrirtæki sem með jarðvegsframkvæmdum býr til aðstöðu fyrir vatns- og/eða raflagnir er heimilt að verða við slíkum beiðnum, enda skuli gætt að því að samkeppnisrekstur sé ekki niðurgreiddur af einkaleyfisstarfseminni eða verndaðri starfsemi. Kostnaðarskipting er háð því skilyrði að fjarskiptafyrirtækjum bjóðist opinn heildsöluaðgangur að þeim fjarskiptavirkjum sem þannig eru byggð. Gjald fyrir aðganginn skal reikna út frá kostnaði að viðbættri hæfilegri álagningu. Verði ágreiningur um hvernig skuli reikna kostnaðarhlutdeild fjarskiptahlutans sem viðbótarkostnað af heildarkostnaði framkvæmda eða um gjald fyrir heildsöluaðgang sker Póst- og fjarskiptastofnun úr um hann. Veitufyrirtækjum er gert að tilkynna fyrirhugaðar framkvæmdir með hæfilegum fyrirvara, að lágmarki tveimur mánuðum, og skal netrekendum almennra fjarskiptaneta gefinn kostur á því að koma fyrir sínum eigin fjarskiptavirkjum á sömu kjörum ef það er tæknilega mögulegt. Það er von Póst- og fjarskiptastofnunar að ofangreind úrræði muni koma til með að stuðla að hraðari uppbyggingu fjarskiptainnviða á landsbyggðinni en ella hefði orðið og bæta þar með þá fjarskiptaþjónustu sem íbúum á afskekktum svæðum stendur til boða. Nú þegar hefur tilkynning um eina framkvæmd af þessu tagi verið send netrekendum, en RARIK hefur tilkynnt PFS um fyrirhugaða ljósleiðaraframkvæmd á milli Blönduóss og Skagastrandar. Sjá nánar:Tilkynningar frá veitufyrirtækjum um jarðvegsframkvæmdir sem hægt er að samnýta til að koma fyrir fjarskiptavirkjum.
3. maí 2013
PFS samþykkir umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2013 að upphæð kr. 55.802.000. Skal framlagið greiðast með fyrirvara um stöðu jöfnunarsjóðs og heimild í fjárlögum. Um er að ræða framlag vegna talsímaþjónustu á sviði neyðarþjónustu og neyðarsímsvörunar sem Neyðarlínunni ohf. hefur verið gert skylt að veita. Sjá ákvörðunina í heild:Ákvörðun nr. 5/2013 Umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2013 (PDF)