Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa

Fjarskiptastofu er ætlað að tryggja hagkvæma, örugga og aðgengilega fjarskiptaþjónustu fyrir alla landsmenn. Ör þróun fjarskiptatækninnar og miklar breytingar á markaði einkenna starfsumhverfi stofnunarinnar. Því er lögð áhersla á framsýni, gegnsæ vinnubrögð og aðlögunarhæfni að nýjum aðstæðum í öllu starfi hennar.

  • Fjarskiptastofa sér um að fylgja stefnu stjórnvalda og gerir tillögur um stefnumörkun á sviði fjarskipta.

  • Fjarskiptastofa stuðlar að virkri samkeppni með markaðsgreiningu, kostnaðargreiningu og eftirliti.

  • Fjarskiptastofa gætir hagsmuna neytenda.

  • Fjarskiptastofa sér um úthlutanir tíðna til fjarskiptafyrirtækja og ljósvakamiðla, úthlutar númeraröðum til símafyrirtækja og númerum til skipa.

  • Fjarskiptastofa gegnir lykilhlutverki varðandi net- og upplýsingaöryggi.