Fréttasafn
22. nóvember 2017
Aðgangur að húskössum og frágangur fjarskiptatenginga í þeim
Nánar
PFS birtir í dag tvær ákvarðanir sem varða ágreining milli Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur um aðgang að húskössum og frágang fjarskiptatenginga í þeim. Húskassar eru skápar sem hýsa inntak fjarskiptalagna (heimtauga) þar sem þær tengjast við innanhússfjarskiptalagnir. Samkvæmt fjarskiptalögum eru húskassar á ábyrgð húseigenda, en fjarskiptafyrirtæki eiga rétt til aðgangs að þeim til að framkvæma fjarskiptatengingar.
22. nóvember 2017
Framlengdur skilafrestur umsagna vegna fækkunar dreifingardaga pósts í þéttbýli
Nánar
Skilafrestur umsagna og athugasemda vegna ákvörðunar Íslandspósts um að fækka dreifingardögum pósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar 2018 hefur verið framlengdur til og með 4. desember nk.
21. nóvember 2017
Samráð við ESA um viðbætur við viðmiðunartilboð Mílu og heildsölugjaldskrá fyrir IP talsímaþjónustu á aðgangsleið 3
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun um skilmála og heildsölugjaldskrá Mílu ehf. (Míla) fyrir IP talsímaþjónustu (VoIP) á aðgangsleið 3 í samráð til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
16. nóvember 2017
PFS samþykkir nýjar heildsölugjaldskrár Mílu fyrir ljóslínur
Nánar
Með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 24/2017 samþykkir stofnunin kostnaðargreiningu Mílu á heildsöluverðum fyrir ljóslínur í götuskápa (markaður 4/2008) og ljóslínur í aðgangsneti (markaður 6/2008) með þeim breytingum sem gerðar voru við meðferð greiningarinnar hjá stofnuninni.
15. nóvember 2017
Ísland í 1. sæti á heimsvísu í upplýsingatækni og fjarskiptum skv. skýrslu Alþjóðafjarskiptasambandsins.
Nánar
Alþjóðafjarskiptasambandið hefur gefið út árlega skýrslu um stöðu og þróun upplýsingasamfélagsins í ríkjum heimsins fyrir árið 2017 þar sem Ísland er í efsta sæti.
13. nóvember 2017
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum á fyrri hluta ársins 2017
Nánar
Ný tölfræðiskýrsla um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði á fyrri hluta ársins 2017.
7. nóvember 2017
Íslandspóstur hyggst fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli - PFS kallar eftir umsögnum
Nánar
Íslandpóstur hefur tilkynnt Póst- og fjarskiptastofnun, með bréfi dags. 28. september sl., að fyrirtækið hygðist breyta fyrirkomulagi á póstdreifingu í þéttbýli.
3. nóvember 2017
Niðurstöður úttektar á vinnslu símaskrárupplýsinga
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) birtir nú skýrslu um niðurstöðu úttektar á verkferlum um skráningu og miðlun símaskrárupplýsinga í gagnagrunn Hins íslenska númerafélags ehf. (HÍN). Beindist úttektin annars vegar að þeim fjarskiptafyrirtækjum sem úthluta símanúmerum og eru eigendur í HÍN og hins vegar að upplýsingaveitum símskrárupplýsinga.