Fréttasafn
31. október 2017
Íslandspósti gert að gera breytingar á afsláttarskilmálum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 23/2017, þar sem Íslandspósti er gert að afturkalla tilkynningu til viðskiptavina sinna frá 7. apríl 2017, um niðurfellingu svokallaðra viðbótarafslátta magnpósts innan einkaréttar, eða geri aðrar þær breytingar á afsláttarfyrirkomulaginu, sem leiða til þess að tryggt sé að sendendur póstsendinga og/eða söfnunaraðilar fái þann afslátt sem þeim ber lögum samkvæmt.
30. október 2017
Fjöldi kvartana vegna óumbeðinna fjarskipta í tengslum við alþingiskosningarnar
Nánar
Tugir einstaklinga hafa sent erindi til Póst- og fjarskiptastofnun þar sem kvartað er vegna óumbeðinna SMS skeyta sem viðkomandi fengu send frá stjórnmálaflokkum í tengslum við alþingiskosningarnar um helgina.
27. október 2017
PFS kallar eftir samráði um viðbætur við viðmiðunartilboð Mílu fyrir bitastraumsflutning vegna IP talsímaþjónustu á aðgangsleið 3
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur lokið yfirferð á breytingum Mílu ehf. á viðmiðunartilboði fyrir bitastraumsflutning vegna nýrrar þjónustu, flutning IP talsímaþjónustu (VoIP) yfir aðgangsleið 3.
26. október 2017
PFS hefur ákvarðað ný heildsöluverð fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum almennum talsímanetum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur birt ákvarðanir sínar um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í föstum almennum talsímanetum og um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í farsímanetum.
20. október 2017
PFS kallar eftir samráði um endurskoðun á gjaldskrá Mílu fyrir IP talsímaþjónustu á aðgangsleið 3
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur lokið yfirferð á kostnaðargreiningu Mílu ehf. á nýrri þjónustu, IP talsímaþjónustu (VoIP) á aðgangsleið 3. Í dag er Míla ehf. að bjóða VoIP þjónustu á aðgangsleið 1 en þessi þjónusta hefur ekki verið í boði á aðgangsleið 3. VoIP þjónusta tilheyrir heildsölumarkaði fyrir bitastraumsaðgang sem er markaður nr. 5 samkvæmt tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá árinu 2008.
20. október 2017
Þráðlausir WiFi netbeinar frá fjarskiptafélögum hérlendis flestir uppfærðir. Fólk skoði endabúnað og einkanetbeina.
Nánar
Mesta hættan vegna KRACK veikleikans er talin vera liðin hjá. Best er þó að fara varlega í notkun á þráðlausum WiFi netum á opinberum stöðum svo sem flugvöllum og kaffihúsum.
16. október 2017
Öryggisbrestur í þráðlausum tengingum – Notendum bent á að forðast WiFi tengingar á næstunni
Nánar
KRACK brýtur WPA2 dulkóðun á WiFi tengingum
13. október 2017
Samráð við ESA um heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljóslínur
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun varðandi endurskoðun á heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljóslínur í götuskápa og ljóslínur í aðgangsneti til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).