Fréttasafn
21. mars 2014
Samráð við ESA um markaðsgreiningu á leigulínumörkuðum
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) drög að tveimur ákvörðunum er lúta að markaðsgreiningum á leigulínumörkuðum. Annars vegar er um að ræða heildsölumarkað fyrir lúkningarhluta leigulína (markaður 6) og hins vegar smásölumarkað fyrir lágmarksframboð af leigulínum (áður markaður 7). Þriðji leigulínumarkaðurinn, þ.e. heildsölumarkaður fyrir stofnlínuhluta leigulína (áður markaður 14), verður greindur á næstu mánuðum. PFS hyggst viðhalda útnefningu Mílu, sbr. ákvörðun PFS nr. 20/2007, sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á heildsölumarkaði fyrir lúkningarhluta leigulína (markaður 6) og álagningu viðeigandi kvaða á félagið. Þrátt fyrir innkomu Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og fleiri staðbundinna netrekenda er markaðshlutdeild Mílu enn um 70-80% samkvæmt algengustu viðmiðum um markaðshlutdeild og eru enn verulegar aðgangshindranir ríkjandi á viðkomandi markaði að mati PFS.
17. mars 2014
Frestur til athugasemda á samráði um samnýtingu tíðna Vodafone og Nova framlengdur til 28. mars n.k.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að framlengja frest hagsmunaaðila til að skila inn athugasemdum og umsögnum í samráði um fyrirhugaða ákvörðun stofnunarinnar um að heimila samnýtingu á tíðnum Fjarskipta hf. og Nova ehf. sem félögunum hefur verið úthlutað til veitingar GSM, UMTS/3G og LTE/4G þjónustu á 800 MHz, 900 MHz (að undanskildum 2x5 MHz), 1800 MHz og 2100 MHz tíðnisviðunum.
7. mars 2014
Framlengdur skilafrestur athugasemda í tveimur samráðum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að framlengja frest hagsmunaaðila til að skila inn umsögnum og athugasemdum vegna tveggja samráða varðandi aðgangsleið 1 (markaður 5), sem auglýst voru þann 21. febrúar sl. Annars vegar er um að ræða afmarkað aukasamráð um kostnaðargreiningu fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1 og hins vegar samráð um viðauka vegna aðgangsleiðar 1 hjá Mílu og viðbótarþjónustu. Nýr frestur til að skila inn umsögnum um samráðsskjölin er til og með 11. mars 2014.
4. mars 2014
PFS kallar eftir samráði vegna fyrirhugaðrar ákvörðunar um að heimila samnýtingu á tíðnum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun kallar eftir samráði við hagsmunaaðila vegna fyrirhugaðrar ákvörðunar stofnunar um að heimila Fjarskiptum hf. (Vodafone) og Nova ehf. samnýtingu á tíðnum sem félögunum hefur verið úthlutað til veitingar GSM, UMTS/3G og LTE/4G þjónustu á 800 MHz, 900 MHz (að undanskildum 2x5 MHz), 1800 MHz og 2100 MHz tíðnisviðunum.
21. febrúar 2014
PFS birtir umræðuskjal um alþjónustuskyldur varðandi aðgang að almenna fjarskiptanetinu
Nánar
Samkvæmt fjarskiptalögum eiga allir landsmenn rétt á aðgangi að almenna fjarskiptanetinu eftir því sem nánar er kveðið á um í lögunum og reglugerð um alþjónustu á sviði fjarskipta nr. 1356/2007. Hingað til hafa koparheimtaugar verið uppistaðan í aðgangslínum notenda en á síðustu árum hafa ljósleiðaratengingar í síauknum mæli tekið við, þó fyrst og fremst í þéttbýli. Eiginleikar heimtauga ráða því hvaða þjónustu hægt er að veita á heimtauginni. Vegalengd frá símstöð til heimilis ræður því hvort hægt er að veita háhraðanetsþjónustu yfir koparheimtaugina. Í dreifbýli eru vegalengdir að öðru jöfnu það miklar að ekki er hægt að veita háhraðanetþjónustu yfir slíkar heimtaugar.
21. febrúar 2014
PFS efnir til samráðs um viðauka vegna aðgangsleiðar 1 hjá Mílu og viðbótarþjónustu (markaður 5)
Nánar
Með tölvupósti frá Mílu, dags. 20. febrúar sl., barst Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) ósk félagsins um samþykki stofnunarinnar fyrir breytingu á viðmiðunartilboði Mílu um bitastraumsaðgang að því er varðar aðgangsleið 1 og tiltekna viðbótarþjónustu við þá leið. Um er að ræða viðauka sem yrði viðauki 5 við ofangreint viðmiðunartilboð, samþykki PFS áform Mílu. Fram kemur í máli Mílu að viðaukanum sé ætlað að breyta viðmiðunartilboði félagsins vegna bitastraumsaðgangs í samræmi við ákvörðun PFS nr. 38/2012 og skyldi gilda þar til viðmiðunartilboði um bitastraumsaðgang verður breytt með heildstæðum hætti. Meginbreytingin er sú að nú er unnt að nota umrædda heildsöluskipta á fjölbreyttari hátt en áður var gert ráð fyrir, t.d. til beinna fyrirtækjatenginga, stofnlínutenginga eða tenginga við farsímasenda.
21. febrúar 2014
PFS efnir til afmarkaðs aukasamráðs um kostnaðargreiningu fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
Nánar
Þann 20. desember 2013 efndi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til samráðs um drög að ákvörðun varðandi kostnaðargreiningu fyrir bitastraumsaðgang samkvæmt aðgangsleið 1 og 3. Drögin náðu einnig til kostnaðargreiningar fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1. Samráðsfrestur rann út þann 13. janúar sl. Athugasemdir bárust frá Vodafone, Tali og Gagnaveitu Reykjavíkur. Í kjölfar ábendingar frá Vodafone komu fram nýjar upplýsingar sem leiddu í ljós að þær forsendur Mílu sem PFS hafði til viðmiðunar við útreikninga á verðum fyrir heildsöluskipta voru ekki réttar. PFS hefur því endurskoðað þær forsendur sem lágu til grundvallar útreikningum á gjaldskrá fyrir heildsöluskipta og reiknað út ný verð í samræmi við breyttar forsendur.
6. febrúar 2014
Staðlaðar verklagsreglur um meðhöndlun neyðarástands í netheimum
Nánar
Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópusambandsins, ENISA, hefur gefið út staðlaðar verklagsreglur fyrir þá aðila sem koma að meðhöndlun og viðbrögðum við neyðarástandi eða stóráföllum á internetinu, sem ná til fleiri landa. Verklagsreglurnar kallast EU-SOP, eða EU-Standard Operational Procedures. Þær hafa verið í þróun innan ESB og EFTA landanna í samvinnu við ENISA á undanförnum árum og hafa sameiginlegar æfingar netöryggissveita innan Evrópu stuðlað að þróun þeirra.