Fréttasafn
30. mars 2006
Úrskurðarnefnd fjarskipta og póstmála
Nánar
Úrskurður í máli nr. 4/2006 frá úrskurðarnefnd fjarskipta og póstmála (pdf)
6. mars 2006
Úrskurðarnefnd afgreiðir tvær kærur
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskiptamála kom saman 3. mars 2006. Hún kvað upp úrskurði í tveimur kærumálum; annars vegar í máli Reykjaprents ehf gegn Póst- og fjarskiptastofnun og Símanum hf. og hins vegar kæru Símans gegn Póst- og fjarskiptastofnun. Sjá úrskurðina hér að neðan. nr. 1/2006 - 3. mars 2006 - Reykjaprent ehf. gegn PFS og Símanum hf. nr. 2/2006 - 3. mars 2006 - Síminn gegn PFS
6. mars 2006
Bráðabirgðaákvörðun PFS - Einkaréttur OR til fjarskiptalagna
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákvarðað til bráðabirgða að Orkuveitu Reykjavíkur sé óheimilt að bera fyrir sig ákvæði um einkarétt sér til handa til fjarskiptalagna í landi Kross, Innri-Akraneshreppi. Þetta er gert með vísan til heimildar í 11. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun. Í ávörðunarorðum 28. febrúar 2006 segir: Orkuveitu Reykjavíkur er óheimilt að bera fyrir sig ákvæði um einkarétt sér til handa til fjarskiptalagna í landi Kross, Innri-Akraneshreppi, í samningi, dags. 10. febrúar 2005, milli Orkuveitu Reykjavíkur, Innri-Akraneshrepps og Stafna á milli ehf. Orkuveita Reykjavíkur skal heimila Símanum hf. að samnýta skurði þá sem lagðir verða um umrætt land með atbeina Orkuveitu Reykjavíkur.Ákvörðun þessi tekur gildi frá dagsetningu ákvörðunar.Ákvörðun þessi er kæranleg til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, sbr. 13. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun. Kæran skal berast úrskurðarnefnd innan fjögurra vikna frá því viðkomandi varð kunnugt um ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Sjá bráðabirgðarákvörðunina í heild sinni (pdf)
10. febrúar 2006
Yfirlýsing um netsímaþjónustu
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur tilkynnt að heimilt sé að flytja símanúmer milli hefðbundinnar talsímaþjónustu og netsímaþjónustu (VoIP) nema þegar um flökkuþjónustu er að ræða. Ennfremur hefur verið ákveðið að úthluta sérstökum símanúmerum fyrir svokallaða flökkuþjónustu en það er netsímaþjónusta sem ekki er bundin við ákveðna staðsetningu. Númeraflutningur er ekki heimilaður milli slíkrar þjónustu og hefðbundinnar talsímaþjónustu. Með þessu er fyrirtækjum gert kleift að bjóða netsímaþjónustu til almennings. Framboð á slíkri þjónustu getur leitt til aukinnar samkeppni í talsímaþjónustu. Sjá yfirlýsingu PFS um netsímaþjónustu Sjá yfirlýsing ERG um netsímaþjónustu Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Ingvason forstöðumaður eftirlitsdeildar Póst- og fjarskiptastofnunar í síma 510-1500.
10. febrúar 2006
Breyting á samtengigjöldum Símans - ný ákvörðun
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur afturkallað ákvörðun sína frá 4. janúar sl. um breytingar á samtengingargjöldum Símans. Jafnframt hefur stofnunin tekið nýja ákvörðun í málinu, þar sem skýrt er kveðið á um afstöðu stofnunarinnar til hækkunar téðra gjalda. Ástæða þess að PFS afturkallar ákvörðun sína frá 4. janúar er sú að ákvörðunarorð stofnunarinnar voru þannig orðuð að skilja mátti þau ein og sér með þeim hætti að stofnunin hafnaði öllum breytingum sem Síminn hafði tilkynnt þann 25. nóvember sl., en eins og kom fram í forsendum ákvörðunarinnar var ætlunin aðeins að hafna tilteknum liðum. Taldi PFS sér því rétt og skylt að afturkalla téða ákvörðun og taka nýja ákvörðun þar sem sú afstaða stofnunarinnar kemur fram með skýrari hætti að hafna hækkunum á kvöld-, nætur- og helgidagataxta fyrir umflutning, nýju tengigjaldi fyrir umflutning og hækkun á sérstöku gjaldi fyrir aðgangstengingu í föstu forvali. Ekki eru gerðar athugasemdir við hækkun á kvöldtaxta fyrir lúkningu í NMT farsímanet Símans, né ýmiss tengigjöld sem með tilkynningu Símans voru færð inn í viðmiðunartilboðið. Í bréfi PFS til Símans er því hins vegar hafnað að PFS hafi brotið reglur stjórnsýslulaga um andmælarétt, rannsóknarreglu og jafnræði. Sjá nánar bréf PFS, dags. 25. janúar 2006, krafa um afturköllun og breyting á samtengingargjöldum og ákvörðun PFS, dags. 25. janúar 2006. Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Ingvason forstöðumaður eftirlitsdeildar Póst- og fjarskiptastofnunar í síma 510-1500.
30. janúar 2006
Samráð - Verðsamanburður og aðlögunartími fyrir lækkun lúkningaverðs vegna símtala í GSM farsímanet Símans og Og fjarskipta
Nánar
Með bréfi, dags. 8. júlí 2005, lagði Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) frumdrög greiningar að heildsölumarkaði um lúkningu símtala í einstökum farsímanetum (markað 16) fram til samráðs og bauð fjarskiptafyrirtækjum og öðrum sem áhuga höfðu á að gera athugasemdir við þau. Í frumdrögunum kemur fram að með heimild í 32. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 hyggst PFS ákveða lúkningaverð fyrir símtöl í GSM farsímaneti Símans og Og fjarskipta með samanburði við verð sem tíðkast á sambærilegum mörkuðum. PFS hefur nú útbúið skjal þar sem gert er grein fyrir þeirri aðferðafræði sem stofnunin hyggst styðjast við við ákvörðun á lúkningaverði fyrir símtöl í GSM farsímaneti Símans og Og fjarskipta og aðlögunartíma fyrir lækkun verðsins. Skjalið er nú lagt fram til samráðs og PFS býður fjarskiptafyrirtækjum og öðrum sem áhuga hafa á að gera athugasemdir við það, sbr. 6. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. Skjalið er að finna á heimasíðu PFS www.pfs.is. Athugasemdum ber að skila til PFS eigi síðar en mánudaginn 20. febrúar nk. Þegar athugasemdir hafa borist mun PFS endurskoða skjalið með hliðsjón af þeim og síðan verður skjalið sent til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) með greiningu að markaði 16 og svörum PFS við þeim athugasemdum sem bárust við frumdrög greiningar að markaði 16, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 69/2003. Geri ESA ekki athugasemdir við markaðsgreiningu og niðurstöður PFS verður ákvörðun birt hlutaðeigandi fyrirtækjum. Verðsamanburður og aðlögunartími fyrir lækkun lúkningaverðs vegna símtala í GSM farsímanet Símans og Og fjarskipta ( PDF)
24. janúar 2006
Netöryggi
Nánar
Póst og fjarskiptastofnun hefur opnað nýjan upplýsingavef um tölvu- og netöryggismál, www.netoryggi.is Samfara síaukinni netumferð hefur margskonar ónæði og misnotkun gagna aukist, s.s. tölvuveirur, amapóstur, njósnahugbúnaður og fleira. Nauðsynlegt er að stemma stigu við þessu með samstilltu átaki stjórnvalda, fyrirtækja og almennings. Alþingi hefur nú þegar samþykkt fjarskiptaáætlun 2005-2010 . Þar kemur fram að öryggi Internetsins verði bætt þannig að almenningur geti treyst á það í viðskiptum og daglegu lífi. Þar er nánar tekið fram að leiðbeiningum verði miðlað til neytenda, svo og fræðsluefni um öryggismál, neytendavernd, persónuvernd og siðferðileg álitaefni sem tengjast sívaxandi notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni. Samgönguráðherra hefur falið Póst- og fjarskiptastofnun að annast framkvæmd þeirra verkefna sem fram koma í fjarskiptaáætlun. Nýi vefurinn er skref til þess að upplýsa almenning um þau mál er snúa að netnotkun og veita góð ráð en afar mismunandi er hversu vel netþjónustufyrirtækjum tekst til í þessum efnum. Öryggismál þurfa að vera í stöðugri endurskoðun og mun vefurinn breytast í samræmi við þróunina.
23. janúar 2006
Atvinnutækifæri - auglýst eftir forstöðumanni og sérfræðingi
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun auglýsir eftir forstöðumanni fjarskiptaáætlunar og sérfræðingi í fjarskipta- eða upplýsingakerfum. Forstöðumaður fjarskiptaáætlunarForstöðumaður skipuleggur framkvæmd fjarskiptaáætlunar innan Póst- og fjarskiptastofnunar. Hann sér um samræmingu, tilboðs- og samningagerð og samskipti við hagsmunaaðila. Í starfi þessu reynir á skipulagshæfileika, frumkvæði, verkstjórn og mannleg samskipti. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu háskólamenntaðir. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi víðtæka starfsreynslu við stjórnun auk reynslu af uppbyggingu eða rekstri upplýsinga- eða fjarskiptakerfa. Tjáningarhæfni er jafnframt lykilatriði í starfi þessu. Sérfræðingur í fjarskipta- eða upplýsingakerfumSérfræðingur stýrir og tekur þátt í verkefnum er snúa að framkvæmd fjarskiptaáætlunar. Hann hefur mikil samskipti við ráðgjafa, sem og verktaka er koma að framkvæmd fjarskiptaáætlunar. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu verkfræðingar, tölvunarfræðingar eða hafi sambærilega menntun. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af uppbyggingu eða rekstri upplýsingakerfa eða fjarskiptakerfa. Almennar hæfniskröfur til umsækjendaGott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli. Áhersla er lögð á frumkvæði, faglegan metnað og skipuleg vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum auk metnaðar til árangurs í starfi. Í boði eru áhugaverð störf og ögrandi verkefni á traustum og vinalegum vinnustað í nánu samstarfi við alþjóðasamtök og erlendar systurstofnanir í aðildarlöndum EES. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2006. Gengið verður frá ráðningum skv. nánara samkomulagi. Vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ MRI. Guðný Harðardóttir og Birna V. Jakobsdóttir veita nánari upplýsingar, en viðtalstímar eru frá kl. 13-15 alla virka daga. Vinsamlega sendið eigin starfsferilskrár til stra@stra.is ásamt viðeigandi prófgögnum.