Fréttasafn
28. ágúst 2008
Niðurstöður PFS um framtíðarskipan GSM 900 tíðnisviðsins
Nánar
Að loknu samráði við hagsmunaaðila hefur Póst- og fjarskiptastofnun tekið ákvörðun um hvernig haga skuli framtíðarnýtingu GSM 900 tíðnisviðsins á Íslandi. Þetta er annað af þeim tíðnisviðum sem er notað fyrir GSM farsímaþjónustu á Íslandi og það sem mest er notað. Ör þróun og miklar breytingar á farsímamarkaði um þessar mundir er ein af ástæðum þess að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) taldi sérstaka ástæðu til þess að flýta stefnumótun og taka ákvörðun um framtíðarnýtingu GSM 900 tíðnisviðsins á Íslandi. Helstu markmið PFS varðandi framtíðarnýtingu GSM 900 tíðnisviðsins eru: i) Að raska ekki grundvelli áframhaldandi hagkvæms rekstrar núverandi GSM 900 farsímakerfa.ii) Að jafna aðstöðu núverandi 3G tíðnirétthafa á GSM 900 tíðnisviðinu.iii) Að jafna aðstöðu núverandi tíðnirétthafa á GSM 900 tíðnisviðinu.iv) Að opna leið fyrir aðra, t.d. núverandi GSM 1800 tíðnirétthafa, til þess að fá tíðniheimildir á GSM 900 tíðnisviðinu. Þar sem miklir hagsmunir eru í húfi tók PFS saman ýmsa þætti varðandi GSM 900 tíðnisviðið í umræðuskjali sem sent var hagsmunaaðilum til umsagnar þann 5. maí sl. Frestur til að skila athugasemdum og umsögnum var til 27. maí sl. Helstu niðurstöður PFS að loknu samráði: Úthluta strax og án útboðs til Nova 2x5 MHz af E-GSM tíðnisviðinu (Extension bandið, nú ónotað). Gildistími til 30.3.2022 til samræmis við 3G-tíðniheimild fyrirtækisins. Gefa Símanum kost á að fá úthlutað strax og án útboðs 2x1 MHz (áður notað fyrir þráðlausa síma, CT1). Heildartíðnisvið Símans yrði þá 2x15 MHz. Gildistími til 14.2.2011. Gefa Vodafone kost á að fá úthlutað strax og án útboðs 2x5 MHz af GSM-E tíðnisviðinu (nú ónotað). Alls hefði fyrirtækið þá 2x15 MHz til ráðstöfunar, hið sama og Síminn. Gildistími til 14.2.2011. Engin skerðing á núverandi tíðniheimildum Símans fyrr en í fyrsta lagi 14.2.2011, þegar allar GSM900 tíðniheimildir renna út. Heildarniðurstöður PFS og samantekt á umsögnum (PDF) Sjá einnig frétt á vef PFS frá 5. maí sl. þar sem lesa má samráðsskjalið og þau gögn sem vísað er til í skjalinu.
22. ágúst 2008
Ákvörðun PFS: Gjaldskrá Nova ekki í vegi fyrir sanngjörnum samtengisamningi við Símann
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 22/2008 í ágreiningsmáli Símans hf. og Nova ehf. um gjaldskrá Nova fyrir lúkningu símtala í farsímaneti fyrirtækisins. Með ákvörðun PFS nr. 2/2008, í janúar sl., komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að ágreiningur Símans hf. og Nova ehf. um samtengiverðskrá Nova, sbr. bókun fyrirtækjanna, dags. 6. júlí 2007, ætti undir Póst- og fjarskiptastofnun og að hún hefði viðhlítandi valdheimildir til að skera úr um ágreiningsefnið. Með bréfi, dags. 10. janúar 2008 var Nova og Símanum gefinn kostur á að koma að sínum sjónarmiðum varðandi þann efnisþátt málsins sem snéri að gjaldskrá Nova fyrir samtengingarþjónustu. Athugasemdir fyrirtækjanna bárust með bréfum, dags. 15. febrúar. Síminn taldi að verðmunur á samtengiverðskrá Símans og Nova væri óeðlilega hár og krafðist þess að PFS tæki ákvörðun um að lækka lúkningarverð og tengigjald Nova ehf. Niðurstaða PFS er að gjaldskrá Nova sé ekki háð neinum þeim efnislegu annmörkum sem leiða til þess að hún verði talin takmörkun eða hindrun í vegi þess að komið sé á sanngjörnum samtengisamningi við Símann. Því verði það hvorki talið nauðsynlegt né standi til þess lagaforsendur, með heimild í 24. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003, sbr. og 9. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun, að hafa afskipti af gjaldskrá Nova fyrir lúkningu símtala inn í farsímanet fyrirtækisins. Gjaldskrá fyrirtækisins sem birtist í samtengingarsamningi fyrirtækisins við Símann, dags. 6. júlí 2007, Viðauki 1b, með þeirri breytingu sem fyrirtækið tilkynnti þann 30. maí s.l. til PFS og tók gildi 1. júní 2008, skuli því gilda í uppgjörum á milli aðila. Ákvörðunina í heild má lesa hér fyrir neðan (PDF form): Ákvörðun PFS nr. 22/2008 í ágreiningsmáli Símans hf. og Nova ehf. um gjaldskrá Nova fyrir lúkningu símtala í farsímaneti fyrirtækisins - 14. ágúst 2008 Sjá einnig ákvörðun PFS nr. 2/2008 frá 11. janúar 2008 um ágreining Símans hf. og Nova ehf. um samtengingargjöld.
21. ágúst 2008
Fimm ákvarðanir PFS um heimild Íslandspósts til fækkunar póstafgreiðslustaða
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt fimm ákvarðanir þar sem samþykktar eru umsóknir Íslandspósts um að loka póstafgreiðslustöðum á Flúðum, í Varmahlíð, að Reykholti, á Króksfjarðarnesi og á Laugum. Um ástæður lokunar póstafgreiðslna á ofangreindum stöðum kom fram að Íslandspóstur telur að vegna smæðar samfélagsins sé ekki þörf á að reka sérstaka póstafgreiðslu heldur sé hægt á auðveldan hátt að leysa af hendi þjónustu póstafgreiðslunnar með landpósti. Landpóstar séu eins konar „pósthús á hjólum“, sem komi með og sæki sendingar eftir þörfum. Er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að sú þjónusta sem Íslandspóstur hyggst bjóða íbúum í viðkomandi sveitarfélögum uppfylli eftir sem áður gæðakröfur laga um póstþjónustu nr. 19/2002. Hér fyrir neðan má lesa ákvarðanirnar í heild (PDF form): Ákvörðun PFS nr. 16/2008 um lokun póstafgreiðslu á Flúðum - 10. júlí 2008 Ákvörðun PFS nr. 17/2008 um lokun póstafgreiðslu í Varmahlíð - 18. júlí 2008 Ákvörðun PFS nr. 18/2008 um lokun póstafgreiðslu að Reykholti - 18. júlí 2008 Ákvörðun PFS nr. 20/2008 um lokun póstafgreiðslu á Laugum - 12. ágúst 2008 Ákvörðun PFS nr. 21/2008 um lokun póstafgreiðslu á Króksfjarðarnesi - 12. ágúst 2008
12. ágúst 2008
Úrskurðarnefnd staðfestir tvær ákvarðanir PFS um fækkun póstdreifingardaga
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur staðfest tvær ákvarðanir PFS frá því í febrúar um fækkun póstdreifingardaga frá Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi og Patreksfirði í Vesturbyggð. Bæði Reykhólahreppur og Vesturbyggð kærðu ákvarðanir PFS til úrskurðarnefndar sem nú hefur kveðið upp úrskurði sína. Sjá nánar: Úrskurður úrskurðarnefndar nr. 3/2008 - Reykhólahreppur gegn Póst- og fjarskiptastofnun og Íslandspósti hf. - 11. ágúst 2008Ákvörðun PFS nr. 5/2008 - Erindi Íslandspósts hf. um fækkun dreifingardaga á landpóstaleið sem ekin er frá Króksfjarðarnesi - 27. febrúar 2008 Úrskurður úrskurðarnefndar nr. 4/2008 - Vesturbyggð gegn Póst- og fjarskiptastofnun og Íslandspósti hf. - 11. ágúst 2008Ákvörðun PFS nr. 6/2008 - Erindi Íslandspósts hf. um fækkun dreifingardaga út frá Patreksfirði. - 27. febrúar 2008Sjá einnig: Viðauki við ákvörðun PFS nr 6/2008.
7. ágúst 2008
Tölfræðiskýrsla um íslenskan fjarskiptamarkað 2007
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun birtir nú í annað sinn tölfræðiskýrslu um íslenskan fjarskiptamarkað. Í skýrslunni er að finna ítarlegar upplýsingar um fjarskiptamarkaðinn fyrir árin 2005 – 2007. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, internetinu og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. Tölfræði um íslenska fjarskiptamarkaðinn 2007 (PDF)
24. júlí 2008
Ákvörðun PFS: Íslandspóstur fær leyfi til að hækka gjaldskrá fyrir bréf innan einkaréttar
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað Íslandspósti að hækka gjaldskrá fyrir bréf innan einkaréttar. Bréf í 20 gr. flokki hækka úr 65 kr. í 70 kr. og bréf í 50 gr. flokki hækka úr 75 kr. í 80 kr. Skjal (PDF)
24. júlí 2008
PFS hefur birt ákvörðun nr. 15/2008 í ágreiningsmáli Og fjarskipta ehf. (Vodafone) og Símans hf. um afslátt af verði fyrir bitastraumsaðgang til endursölu
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun tók þann 18. júlí s.l. ákvörðun þess efnis að Símanum er skylt uppfylla skyldu sína og fara að þeim kvöðum sem lagðar voru á fyrirtækið með ákvörðun PFS nr. 8/2008 ( um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir breiðbandsaðgang (markaður 12)), frá 18. apríl 2008, og veita bitastraumsaðgang án hindrana og verðleggja allar ADSL tengingar til Vodafone í samræmi við kvöð um eftirlit með gjaldskrá skv. fyrrnefndri ákvörðun. Í ákvörðunarorðum segir m.a.:„ Síminn skal í viðskiptum sínum við Vodafone, frá og með 18. apríl s.l., veita fyrirtækinu að lágmarki 35% afslátt (35% smásala mínus) af öllum ADSL tengingum sem það kaupir í heildsölu, enda uppfylli Vodafone lágmarkskilyrðið um endursölu á að lágmarki 75 tengingum .“ Ákvörðun (PDF)
18. júlí 2008
Fyrirhuguð birting á tölfræðiupplýsingum
Nánar
Í ágústmánuði hyggst Póst- og fjarskiptastofnun gefa út í annað sinn skýrslu um tölfræði á fjarskiptamarkaði hér á landi og verður hún unnin upp úr upplýsingum sem stofnunin safnar frá fjarskiptafyrirtækjum hér á landi. Birtar verða upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á fjarskiptamarkaði fyrir árin 2005 til 2007. Markmiðið með skýrslunni er að bæta upplýsingagjöf og auka gegnsæi á þessum markaði. Skýrslan sem Póst- og fjarskiptastofnun hyggst nú gefa út er sambærileg við skýrslu sem birt var í júní sl. en þó hefur verið bætt við upplýsingum sem felast aðallega í aukinni upplýsingagjöf á farsímaneti. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær töflur sem eru nýjar. • Tafla 4 - Fjöldi mínútna á fastaneti• Tafla 9 - Fjöldi farsíma viðskiptavina• Tafla 12 - Fjöldi mínútna úr farsíma• Tafla 14 - Fjöldi mínútna úr farsíma til fastanets• Tafla 15 - Fjöldi mínútna úr farsíma í farsíma• Tafla 16 - Fjöldi mínútna úr farsíma til útlanda• Tafla 21 - Fjöldi xDSL áskrifenda eftir hraða tengingar Upplýsingar í töflum nr. 4,12 og 21 eru ekki sundurliðaðar niður á fyrirtæki. Upplýsingar í töflum nr. 9,14,15 og 16 eru sundurliðaðar niður á fyrirtæki og sýna markaðshlutdeild. Skýrslan mun verða birt á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar eftir 31. júlí nk., nema að fyrir þann tíma komi fram rökstuddar óskir um að tilteknar upplýsingar skuli njóta leyndar, með vísan til 2. mgr. 9. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun, sbr. og 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996.