Fréttasafn
2. febrúar 2016
PFS kallar eftir samráði vegna nýs viðmiðunartilboðs Mílu fyrir heildsöluaðgang að heimtaugum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur borist uppfært viðmiðunartilboð Mílu fyrir heildsöluaðgang að heimtaugum. Með ákvörðun PFS nr. 21/2014 um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum heimtauga og bitastraums var Mílu gert að uppfæra viðmiðunartilboð sitt á þessu sviði.
2. febrúar 2016
Hátt í þreföld aukning á hliðruðu sjónvarpsáhorfi á síðustu fjórum árum
Nánar
Hlutdeild áhorfs á íslenskar sjónvarpsstöðvar sem fer fram eftir upphaflegan útsendingartíma eykst stöðugt, skv. skýrslu sem Gallup hefur gert fyrir PFS.
28. janúar 2016
Ákvörðun PFS um útnefningu Mílu með alþjónustukvöð felld úr gildi
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur með úrskurði sínum í máli nr. 3/2015, frá 26. janúar s.l., fellt úr gildi ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 40/2014 um útnefningu Mílu ehf. með alþjónustukvöð.
28. janúar 2016
Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur númera í fastlínu- og farsímakerfum.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur unnið að endurskoðun á verklagsreglunum með hliðsjón af því hvernig slík skráning og miðlun hefur gengið fyrir sig frá því nýtt fyrirkomulag um miðlun símaskrárupplýsinga tók gildi þann 1. júlí 2014.
22. janúar 2016
Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðgang að koparheimtaugum
Nánar
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsögnum og athugasemdum og skulu þær berast stofnuninni eigi síðar en 29. janúar 2016.
20. janúar 2016
Nýr viðauki um útbreiðslu- og uppbyggingakröfur tíðniheimildar 365 miðla ehf.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) birtir í dag viðauka II við tíðniheimild A í samræmi við ákvörðun stofnunarinnar nr. 37/2015 frá 30. desember sl., þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að forsendur væru fyrir því að gerðar yrðu breytingar á 2. gr. tíðniheimildar A á 800 MHz tíðnisviðinu sem 365 miðlar ehf. hlutu í uppboði stofnunarinnar á tíðnisviðinu í ársbyrjun 2013.
14. janúar 2016
Yfirlýsing Póst- og fjarskiptastofnunar vegna fréttaflutnings af gjaldskrárhækkunum Íslandspósts
Nánar
Vegna nýlegs fréttaflutnings af þeim gjaldskrárhækkunum sem PFS hefur gefið Íslandspósti heimild fyrir á undanförnum misserum vill stofnunin árétta nokkur atriði sem misskilningur virðist ríkja um.
13. janúar 2016
Norðurlönd sameinast um leiðbeinandi reglur til að efla upplýsingaöryggi í fjarskiptanetum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur, ásamt öðrum norrænum fjarskiptaeftirlitsaðilum, gefið út leiðbeinandi reglur, eða tilmæli, til að efla upplýsingaöryggi í fjarskiptanetum. Tilmælin varða merkjakerfi nr. 7 (Signalling System No. 7 eða SS7) sem fjarskiptafyrirtækin nota sín á milli til að setja upp og stýra uppsetningu símtala og gagnastreymi notenda.