Fréttasafn
17. júlí 2017
Samráð við hagsmunaaðila um endurskoðun á gjaldskrá Mílu fyrir ljóslínur
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur lokið við yfirferð á kostnaðargreiningu Mílu ehf. (Mílu) á annars vegar ljóslínum í aðgangsneti (einn þráður og eitt par) og hins vegar ljóslínum í götuskápa (1 til 4 þræðir). Þær vörur sem verðskrá Mílu nær til tilheyra heildsölumörkuðum fyrir lúkningarhluta leigulína og fyrir aðgang að föstum aðgangsnetum sem eru markaðir nr. 6 og 4 samkvæmt tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá árinu 2008.
14. júlí 2017
PFS gefur út tíðniheimildir fyrir háhraðafarnetsþjónustu
Nánar
Þar með er uppboði á tíðniheimildum sem hófst í maí sl. formlega lokið.
3. júlí 2017
Nýtt viðmiðunartilboð Mílu fyrir bitastraumsaðgang í heildsölu tekur gildi 1. ágúst nk.
Nánar
Með ákvörðun sinni nr. 10/2017 frá því í dag samþykkir Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) að nýtt viðmiðunartilboð Mílu ehf. fyrir bitastraumsaðgang í heildsölu taki gildi frá og með 1. ágúst nk.
30. júní 2017
Niðurstöður úr samráði um úthlutun tíðna fyrir hljóðvarp.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur unnið úr svörum sem bárust í samráði um úthlutun tíðna fyrir hljóðvarp sem sett var af stað í apríl sl.
30. júní 2017
Niðurfellingu viðbótarafslátta Íslandspósts frestað
Nánar
Með bráðabirgðaákvörðun nr. 9/2017 hefur PFS frestað niðurfellingu á svokölluðum viðbótarafsláttum Íslandspósts vegna reglubundina viðskipta.
29. júní 2017
Úrskurðarnefnd staðfestir ákv. PFS nr. 20/2016 um myndsímatúlkun
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur staðfest ákvörðun PFS nr. 20/2016 um umsókn Félags heyrnarlausra um að myndsímatúlkun falli undir reglur um alþjónustu.
27. júní 2017
Ný hrina gagnagíslatöku
Nánar
Spilliforrit, sem líklega beitir nýju afbrigði af hugbúnaði sem þekktur er undir nafninu „Petya“ herjar nú á tölvukerfi í nokkrum löndum, svo sem Danmörku, Bretlandi, Úkraínu og Rússlandi.
22. júní 2017
Ný tölfræðiskýrsla um fjarskiptanotkun á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum: Gagnamagn í farnetum heldur áfram að aukast hratt.
Nánar
Í dag kemur út skýrsla sem Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) og systurstofnanir hennar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum hafa tekið saman um notkun helstu þátta fjarskiptaþjónustu og þróun undanfarinna ára í löndunum átta. Þetta er áttunda árið í röð sem fjarskiptanotkun íbúa Norðurlandanna er borin saman og Eystrasaltslöndin hafa einnig verið með síðustu ár.