Fréttasafn
28. maí 2003
Virða skal bannmerki í símaskrá
Nánar
Ábending um að virða bannmerki í símaskrá. Nú þegar hafa um 90 þúsund talsímanotendur farið fram á að Landssíminn merki við þá í símaskrá með bannmerki og er það um tvöföldun frá því sem var í símaskránni fyrir 2002. Grunur leikur á að aðilar sem nota talsímaþjónustu sem lið í markaðssetningu á vöru eða þjónustu virði ekki bannmerki í símaskrá sem gefa til kynna að viðkomandi áskrifandi talsímaþjónustu vilji ekki slíkar hringingar til sín. Þeir áskrifendur sem hafa farið fram á að sett verði bannmerki við nafn sitt í símaskrá en verða þrátt fyrir það fyrir ónæði af völdum aðila sem nota talsímaþjónustu sem lið í markaðsetningu á vöru eða þjónustu, geta snúið sér til Póst- og fjarskiptastofnunar, t.d. með því að senda inn erindi á tölvupóstfangið pta@pta.is Nauðsynlegt er að fram komi hver verður fyrir ónæði og hvaða fyrirtæki það er sem virðir ekki bannmerki símaskrár. Auk þess þarf að koma fram hvaða vöru eða þjónustu verið var að selja með símtali í umrætt skipti. Póst- og fjarskiptastofnun mun í framhaldi af viðbrögðum almennings meta umfang þessa vandamáls og setja sig í samband við þá aðila sem virða ekki bannmerkingar.
23. apríl 2003
Landssíma Íslands gert að lækka heildsölugjald inn í farsímanet sitt
Nánar
Landssíma Íslands gert að lækka heildsölugjald inn í farsímanet sitt Póst- og fjarskiptastofnun hefur í dag, með ákvörðun, gert Landssíma Íslands hf að lækka heildsöluverð inn í GSM farsímanet sitt um 15% að meðaltali frá og með 1. júní nk. Heildsöluverð hjá Landssímanum lækki því úr 11 krónum á dagtaxta og úr 10 krónum á næturtaxta í eitt verð 8,92 krónur. Lækkun þessi gefur fjarskiptafyrirtækjunum svigrúm til þess að lækka verð til neytenda á símaþjónustu sem tengist farsímakerfi Landssíma Íslands. Heildsöluverð (lúkningarverð) í GSM netum er það verð sem fjarskiptafyrirtæki greiða til að viðskiptavinir þeirra geti hringt í notendur annarra GSM farsímakerfa. Sambærileg heildsöluverð hjá Og Vodafone (áður Íslandsími) eru nú 13,50 krónur og er verðmunur á heildsöluverði félaganna því 2,50 krónur á dagtaxta fyrir ákvörðun þessa. Þróun heildsöluverðs erlendis er með svipuðum hætti. Í Noregi og Svíþjóð hafa systurstofnanir Póst- og fjarskiptastofnunar gert farsímafyrirtækjum með umtalsverða markaðshlutdeild að lækka heildsöluverð. Sambærilegt verð í Noregi og Svíþjóð eru um ISK 8, en það er lægsta heildsöluverð í Evrópu nú. Í Bretlandi er heildsöluverð á dagtaxta um 15 krónur og mun lækka í um 9 krónur árið 2005 í þremur 15% skrefum. Póst- og fjarskiptastofnun mun í framhaldi af ákvörðun þessari kanna markaðsstöðu Og Vodafone í þeim tilgangi að kanna hvort fyrirtækið hafi umtalsverða markaðshlutdeild í skilningi fjarskiptalaga. Reynist svo vera getur Póst- og fjarskiptastofnun m.a. lagt þá kvöð á fyrirtækið að það verði að bjóða heildsöluverð inn í net sitt á kostnaðargrundvelli eins og Landssíma Íslands er skylt að gera samkvæmt ákvörðun þessari.
23. apríl 2003
Analysys veitir ráðgjöf vegna kostnaðarútreikninga á heildsöluverði
Nánar
Ráðgjafarfyrirtækið Analysys hefur verið ráðið til að annast ráðgjöf vegna kostnaðarútreikninga heildsöluverðs fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert samning við ráðgjafarfyrirtækið Analysys um ráðgjöf vegna skipulagningar kostnaðarútreikninga á heildsöluverði fjarskiptafyrirtækja. Markmið kostnaðargreiningarinnar er að leiða í ljós raunverulegan kostnað við að veita tiltekna grunnþjónustu. Markaðsráðandi fyrirtæki, í dag Landssíma Íslands, er skylt að selja keppinautum sínum téða þjónustu á kostnaðarverði auk hæfilegrar álagningar. Fram til þessa hefur kostnaðargreining hérlendis verið nánast eingöngu byggð á sögulegum kostnaði úr bókhaldi Landssíma Íslands og krafa um hagræðingu í rekstri fjarskiptafyrirtækja ekki verið ráðandi þáttur í vali á aðferðarfræði við kostnaðarútreikninginn. Þrátt fyrir þetta hefur heildsöluverð á Íslandi verið með því lægsta sem þekkist í Evrópu. Þróunin í nágrannalöndunum er sú að rík áhersla er lögð á hagræðingu í rekstri fjarskiptafyrirtækjanna í útfærslu kostnaðargreiningar með notkun þróaðra kostnaðarlíkana. Notkun slíkra kostnaðarlíkana hefur víða leitt til lækkunar á fjarskiptaþjónustu til neytenda. Ráðgert er að kostnaðargreina heildsöluverðverð fyrir eftirfarandi þjónustu:Lúkningu símtala í fastanetum Leigu heimtaugar Leigulínur Lúkningu símtala í farsímanetum (GSM) Heildsöluverð er síðan notað í viðskiptum við keppinauta eða sem grunneining í þjónustupakka sem fjarskiptafyrirtækin setja saman og bjóða viðskiptavinum sínum í smásölu. Ráðgjafarfyrirtækið Analysys (www.analysys.com) er leiðandi á sviði ráðgjafar í fjarskiptageiranum. Fyrirtækið hefur langa reynslu af gerð og útfærslu kostnaðarlíkana vegna heildsöluþjónustu fjarskiptafyrirtækja.
4. desember 2002
Gagnaveitan ehf. sækir ein um rekstrarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju
Nánar
4. desember 2002. Úthlutun rekstrarleyfis fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju. Frestur til að skila inn umsóknum um rekstarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju, skv. auglýsingu Póst- og fjarskiptastofnunar 18. október 2002, rann út 18. nóvember s.l. Ein umsókn barst, frá Gagnaveitunni ehf. og var leyfi gefið út til umsækjanda í dag 4. desember 2002.
28. nóvember 2002
Heimilað að hækka leigugjald fyrir heimtaug um 9%
Nánar
Fréttatilkynning vegna hækkunar Landssíma Íslands hf. á gjaldi fyrir leigu á heimtaugum Eftir ítarlega skoðun gagna sem Landssími Íslands hf. hefur lagt fram undanfarna 3 mánuði er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að heimila 9% hækkun á heimtaugaleigu. Samhliða er heimiluð samsvarandi hækkun á fastagjaldi fyrir heimilissíma og atvinnusíma. Við ákvörðunina voru metnir ýmsir þættir sem samanlagt mynda kostnaðargrundvöll vegna leigu heimtauga. Þau gögn sem Landssími Íslands hf. hefur lagt fram spanna alla þætti heimtaugakerfisins. Ljóst er að nauðsynlegt er að halda áfram vinnu við að greina kostnað í fjarskiptakerfi Landssímans með það að markmiði að fá fram sem réttast verð á helstu grunnþáttum í þjónustu Landssímans. Forsaga þessarar verðhækkunar er sú að Landssími Íslands hf. tilkynnti Póst- og fjarskiptastofnun um fyrirhugaðar breytingar á taxta fyrir ýmsa þjónustu í júlí sl. Stofnunin taldi ekki ástæðu til að gera athugasemdir við þessar breytingar, að undanskilinni hækkun á heimtaugarleigu. Tilkynning Landssímans um fyrirhugaða hækkun nam rúmum 16%. Í þeim gögnum sem framvísað var, kom fram að Landssíminn mat hækkunarþörf sína í heimtaugarkerfinu yfir 20%. Eftir skoðun Póst og fjarskiptastofnunar á ofangreindum gögnum í ágúst ákvað hún að fresta ákvörðun um verðbreytingar á heimtaugaleigu fram til 1.desember og vinna enn frekar að kostnaðargreiningu. Póst og fjarskiptastofnun telur að rétt verð á leigu heimtauga sé lykilatriði í samkeppni á fjarskiptamarkaði, því heimtaugarleiga er í raun heildsöluverð Landssímans til keppinauta sem selja ýmsa virðisaukandi þjónustu sem tengist heimtauginni svo sem ADSL. Vinna við kostnaðargreininguna hefur verið unnin samhliða vinnu við gerð viðmiðunartilboðs fyrir heimtaugaleigu. Viðmiðunartilboðið verður sent út til kynningar fyrir árslok. Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst og fjarskiptastofnunar.
26. nóvember 2002
Gagnaveitan sækir ein um rekstrarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbyglju
Nánar
Umsóknir um rekstrarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju Frestur til að skila inn umsóknum um rekstarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju, skv. auglýsingu Póst- og fjarskiptastofnunar 19. október 2002, rann út 18. nóvember s.l. Ein umsókn barst, frá Gagnaveitunni ehf. Búist er við að afgreiðslu málsins verði lokið um mánaðarmótin nóvember/desember.
19. október 2002
Auglýsing
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun auglýsir fyrirhugaða úthlutun á rekstrarleyfum fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju. Með vísan til 10. gr. laga um fjarskipti nr. 107/1999 auglýsir Póst- og fjarskiptastofnun eftir umsóknum um leyfi til reksturs þráðlausra notendakerfa á örbylgju, nánar tiltekið í tíðnisviðunum 3,5 Gigaherz og 10 Gigaherz. Á hverju þjónustusvæði verða veitt 1-2 leyfi í 3,5 Gigaherz sviðinu og að hámarki 6 leyfi í 10 Gigaherz sviðinu. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember 2002 og má afhenda umsóknir í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar til kl. 16 þann dag. Með hverri umsókn skal fylgja greiðsla að upphæð kr. 50.000. Þráðlaus notendakerfi tengja miðstöð leyfishafa við notendur á ákveðnu svæði og þjóna svipuðu hlutverki og heimtaugar í koparstrengjum. Þjónusta sem veitt er notendum samanstendur af talþjónustu og gagnaflutningi með bitahraða a.m.k. sambærilegum og í samnetinu. Upplýsingar um útboðið og skilmála má fá í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar, Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi. Sömu upplýsingar er að finna hér fyrir neðan: Upplýsingar fyrir umsækjendur um rekstrarleyfi fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju. Útgefið í október 2002 vegna auglýsingar um umsóknir um leyfi. (skjal á pdf formi)
28. ágúst 2002
Landsíminn frestar hækkun á leigu fyrir heimtaug til 1.des.
Nánar
Fréttatilkynning frá Póst og fjarskiptastofnun. Efni: Verðbreytingar á heimtaugarleigu Landssíma Íslands. Í framhaldi af tilkynningu Landssíma Íslands um hækkun á leigu heimtaugar frá 26. júlí sl sem taka átti gildi 1. september nk, þá hefur Landssíminn ákveðið að fara að tilmælum Póst og fjarskiptastofnunar um að fresta hækkuninni að sinni. Ráðgert er að forsendur verðbreytinga heimtaugarleigunnar liggi fyrir eigi síðar en 1. desember nk. Tíminn fram til 1. desember verður notaður í áframhaldandi greiningu á kostnaði heimtaugarleigunnar samanber reglugerð 960/2001 um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja. Vinna við kostnaðargreininguna verður jafnframt tengd vinnu við gerð viðmiðunartilboðs fyrir heimtaugarleigu. Ráðgert er að gerð viðmiðunartilboðsins ljúki einnig fyrir 1. desember nk. Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst og fjarskiptastofnunar