Fréttasafn
23. júní 2015
Norræn tölfræðiskýrsla: Gagnanotkun í farnetum eykst hratt
Nánar
Í dag kemur út skýrsla sem Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) og systurstofnanir hennar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum hafa tekið saman um notkun helstu þátta fjarskiptaþjónustu og þróun undanfarinna ára í löndunum átta. Þetta er sjötta árið í röð sem fjarskiptanotkun íbúa Norðurlandanna er borin saman og Eystrasaltslöndin hafa einnig verið með síðustu ár.
23. júní 2015
Samráð við ESA um markaðsgreiningu á markaði 7 (lúkning símtala í farsímanetum)
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) drög að ákvörðun um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum.
18. júní 2015
Skrifstofa PFS lokuð eftir hádegi föstudaginn 19. júní
Nánar
Skrifstofa PFS verður lokuð frá kl. 12 á hádegi föstudaginn 19. júní vegna hátíðahalda í tilefni aldarafmælis kosningaréttar kvenna.
15. júní 2015
Samráð við ESA um heildsölugjaldskrá fyrir upphaf og lúkningu símtala í föstum almennum talsímanetum
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun varðandi heildsölugjaldskrá fyrir upphaf og lúkningu símtala í föstum almennum talsímanetum (markaðir 2 og 3) til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA.
11. júní 2015
Samráð við ESA um verð og skilmála fyrir nýja bitastraumsþjónustu hjá Mílu
Nánar
Drög að ákvörðun um verð og skilmála fyrir ADSL+ og SHDLS+ fyrirtækjatengingar á aðgangsleið 1. PFS hyggst samþykkja verð og skilmála Mílu.
10. júní 2015
Ákvörðun PFS í kvörtunarmáli Mílu vegna ljósleiðaralagningar GR í Ölfusi
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) birtir nú ákvörðun sína vegna kvörtunar Mílu um ljósleiðaralagningu Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) í Ölfusi.
1. júní 2015
PFS samþykkir nýja heildsölugjaldskrá Símans fyrir aðgang að almennu talsímaneti fyrir heimili og fyrirtæki
Nánar
Gjaldskráin mun taka gildi þann 1. júlí nk. með þeim breytingum sem mælt er fyrir um í ákvörðun PFS
27. maí 2015
Kallað eftir samráði: Beiðni 365 miðla um breytingu á útbreiðslu- og uppbyggingarkröfum vegna 4G/LTE þjónustu
Nánar
365 miðlar hafa sent PFS erindi þar sem óskað er eftir að stofnunin geri breytingu á skilmálum tíðniheimildar félagsins á 800 MHz tíðnisviðinu, (791-801/832-842 MHz), svokallaðri A tíðniheimild, sem félagið hlaut í uppboði stofnunarinnar í ársbyrjun 2013.