Fréttasafn
10. mars 2009
Ákvörðun PFS: Beiðni Hringiðunnar um aðgang að IP neti Símans á Öxl á Snæfellsnesi hafnað
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur tekið ákvörðun í máli Hringiðunnar ehf. gegn Símanum hf., þar sem Hringiðan krafðist þess að fá aðgang að IP neti Símans á Öxl á Snæfellsnesi. Nánar tiltekið krafðist Hringiðan þess að gagnaflutningur félagsins frá Öxl til Reykjavíkur færi fram um IP kerfi Símans, með flutningsgetu allt að 50 Mb/s, fyrir hámark 50.000 kr. á mánuði. PFS féllst á það með Símanum að umrædd beiðni fæli ekki í sér, eins og hér háttaði til, eðlilega og sanngjarna beiðni um aðgang. PFS hafnaði því umræddri kröfu Hringiðunnar. Hringiðan byggði kröfur sínar m.a. á því að umrædd aðgangskvöð hvíldi á Símanum varðandi IP net félagsins samkvæmt ákvörðun PFS nr. 20/2007, þar sem Síminn var útnefnt sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á leigulínumarkaði fyrir stofnlínur (markaður 14). Ágreiningslaust var í málinu að IP net Símans væri ekki í boði á umræddum stað og að rekstur á slíku kerfi myndi ekki bera sig þar. Síminn bauð Hringiðunni hins vegar IP samband frá Ólafsvík til Reykjavíkur. Úrlausnarefni ákvörðunarinnar snerist því um það hvort beiðni um að Símanum bæri að veita aðgang að IP neti sínu á stað þar sem slíkur aðgangur væri ekki fyrir hendi teldist eðlileg og sanngjörn krafa um aðgang að umræddu fjarskiptaneti. PFS komst að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun sem Hringiðan vísaði til legði ekki þá skyldu á Símann að leggja út í umfangsmikinn kostnað við útbreiðslu IP netsins, sem ekki væri í samræmi við uppbyggingaráætlanir félagsins, til þess að gera öðrum fjarskiptafyrirtækjum kleift að tengjast umræddu neti eða fá aðgang að því á stöðum þar sem það væri ekki þegar til staðar. PFS komst einnig að þeirri niðurstöðu að umrædd aðgangskvöð gæti þó undir vissum kringumstæðum falið í sér að fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk þyrfti á eigin kostnað að leggja út í fjárfestingar sem telja yrði eðlilegar og sanngjarnar til að gera aðgang mögulegan, t.d. varðandi samhýsingu/samnýtingu og uppfærslu á kerfi sem þegar væri til staðar til að auka afkastagetu þess. Umrædd krafa Hringiðunnar rúmaðist að mati PFS ekki innan þeirra viðmiða. Ákvörðun PFS nr. 3/2009 - Beiðni Hringiðunnar um aðgang að IP neti Símans á Öxl.
9. mars 2009
PFS efnir til samráðs um viðmiðunartilboð um samtengingu talsímaneta
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun barst þann 30. janúar sl. tilkynning frá Símanum hf. um nýtt viðmiðunartilboð um samtengingu talsímaneta, með gildistöku frá 1. maí nk. Sjá um samtengingar á heimasíðu Símans. Birting viðmiðunartilboðs um samtengingu talsímaneta er hluti af þeim kvöðum sem lagðar voru á fyrirtækið með ákvörðun PFS nr. 29/2008, dags. 4. desember 2008, um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir upphaf, lúkningu og flutning símtala í föstum almennum talsímanetum (markaðir 8-10). Með ákvörðuninni var m.a. lögð kvöð um gagnsæi á Símann með heimild í 29. gr. fjarskiptalaga og fyrirtækinu gert að útbúa viðmiðunartilboð og birta það opinberlega innan þriggja mánaða frá birtingu ákvörðunar. Viðmiðunartilboðinu skal vera skipt í sjálfstæðar einingar með tilheyrandi skilmálum og skilyrðum, miðað við þarfir markaðarins þannig að gagnaðili neyðist ekki til að samþykkja kaup á þjónustu eða öðrum atriðum sem ekki er þörf fyrir. Í ákvörðuninni eru einnig talin upp þau atriði sem viðmiðunartilboðið skal að lágmarki innihalda. Ef viðmiðunartilboð Símans er ekki talið fullnægjandi fyrir markaðinn getur PFS mælt fyrir um breytingar á því í samræmi við 2. mgr. 29. gr. fjarskiptalaga. Með bréfi, dags. 3. febrúar sl. óskaði stofnunin eftir að Síminn gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á viðmiðunartilboðinu frá útgáfu 3.4.A sem tók gildi þann 1. ágúst 2007, í framhaldi af ákvörðun PFS nr. 13/2007. (Sjá einnig viðauka við ákv. 13/2007) Skýringar Símans bárust stofnuninni með bréfi, dags. 25. febrúar sl. Þar sem viðmiðunartilboðið hefur tekið breytingum frá því að það var síðast yfirfarið af hálfu stofnunarinnar og viðkomandi markaður hefur einnig verið greindur, sbr. fyrrnefnda ákvörðun PFS nr. 29/2008, telur stofnunin rétt að gefa hagsmunaðilum færi á að koma athugasemdum sínum að, áður en stofnunin tekur endanlega afstöðu til þess hvort framangreint viðmiðunartilboð uppfylli þær kvaðir sem lagðar hafa verið á fyrirtækið. Frestur til að koma að athugasemdum er gefinn til 30 mars nk. Óskað er eftir að umsagnir, athugasemdir og/eða ábendingar verði sendar á rafrænu formi á netfangið fridrik(hjá)pfs.is, en jafnframt er óskað eftir að stofnunin fái frumrit til skráningar.
5. mars 2009
PFS samþykkir nýtt viðmiðunartilboð Mílu ehf. fyrir opinn aðgang að heimtaugum, með fyrirmælum um breytingar
Nánar
Með ákvörðun nr. 1/2009, frá 19. febrúar 2009, samþykkti PFS að nýtt viðmiðunartilboð Mílu ehf. fyrir opinn aðgang að heimtaugum, dags. 11. júlí 2008, taki gildi frá og með 1. apríl 2009, með þeim breytingum á skilmálum sem mælt er fyrir um í viðauka við ákvörðunina.Við gildistöku viðmiðunartilboðsins skal Míla hafa lokið við að breyta því í samræmi við fyrirmæli PFS og birta það á aðgengilegan hátt á vefsíðu sinni. Ákvörðun PFS nr. 1/2009 varðandi viðmiðunartilboð Mílu ehf. fyrir opinn aðgang að heimtaugum (PDF)Viðauki við ákvörðun nr. 1/2009 (PDF)
4. mars 2009
Ákvörðun PFS í ágreiningsmáli IP-fjarskipta ehf. (Tals) og Símans hf. um áframhaldandi svæðisbundinn aðgang að farsímaneti Símans
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur birt ákvörðun sína nr. 2/2009 í ágreiningsmáli IP-fjarskipta ehf. (Tals) og Símans hf. um áframhaldandi svæðisbundinn aðgang að farsímaneti Símans. Í ákvörðunarorðum segir:„Símanum hf. er heimilt að hafna beiðni IP-fjarskipti ehf. um áframhaldandi svæðisbundinn reikiaðgang að farsímaneti sínu. Ekki er fallist á rök IP-fjarskipta ehf. fyrir því að geta ekki gengið til samninga við Símann hf. á grundvelli viðmiðunartilboðs um endursöluaðgang að farsímaneti Símans.“ Forsaga málsinsFjarskiptafyrirtækið Tal ræður ekki yfir eigin fjarskiptaneti og kaupir í dag alla fjarskiptaþjónustu af Vodafone í heildsölu og endurselur til síðan viðskiptavina sinna á smásölustigi.Þannig er Tali kleift að bjóða upp á farsímaþjónustu á því svæði sem farsímanet Vodafone nær til. Dreifikerfi Vodafone nær hins vegar ekki yfir allt landið. Hefur Vodafone því aðgang að farsímaneti Símans á þeim svæðum sem dreifikerfi Vodafone nær ekki til á grundvelli reikisamnings fyrirtækjanna. Hefur Tal, fram til þessa, verið með aðgang að þessu sama svæði og Vodafone á grundvelli samnings SKO og Símans, dags. 5. júlí 2006, sem Tal yfirtók vorið 2008. Rann sá samningur úr gildi sl. áramót.Af þessum sökum hefur Tal óskað eftir áframhaldandi svæðisbundnum aðgangi að farsímaneti Símans. Síminn hefur hins vegar synjað þeirri ósk á þeim grundvelli að Tal uppfylli ekki skilyrði til þess að fá reikiaðgang hjá Símanum þar sem Tal hefur hvorki fengið úthlutað tíðnum né rekur eigið farsímanet. Er þetta í samræmi við skilyrði viðmiðunartilboðs Símans um innanlandsreiki sem samþykkt var með ákvörðun PFS nr. 13/2008. Beiðni TalsÍ máli þessu fór Tal þess á leit við Póst- og fjarskiptastofnun að stofnunin hlutaðist til um að tryggja fyrirtækinu áframhaldandi svæðisbundinn aðgang að farsímaneti Símans á grundvelli eldri ákvörðunar PFS (nr. 4/2007) þar sem lögð var sú kvöð á Símann að verða við eðlilegum og sanngjörnum beiðnum fjarskiptafyrirtækja um aðgang að GSM farsímaneti fyrirtækisins og þjónustu á heildsölustigi. Með ákvörðun 4/2007 var Símanum jafnframt gert skylt að birta viðmiðunartilboð um aðgang að farsímaneti félagsins. Á heimasíðu Símans eru nú birt þrjú viðmiðunartilboð um aðgang að farsímaneti félagsins, fyrir innanlandsreiki, fyrir endursöluaðgang og fyrir sýndarnetsaðgang. Er þessum viðmiðunartilboðunum ætlað að vera grundvöllur undir þær samningaviðræður sem vísað er til í aðgangskvöðinni. Rökstuðningur ákvörðunarÍ ákvörðun PFS nú kemur fram að réttur viðsemjanda til aðgangs að farsímaneti Símans byggist á stöðu hans hverju sinni, þ.e. hversu mikla uppbyggingu í farsímakerfum og -netum viðsemjandi hefur ráðist í eða hefur leyfi fyrir og þar með hvaða þjónustu hann hefur þörf á að kaupa af Símanum.Viðsemjandi á ekki sjálfstæðan rétt til aðgangs að farsímaneti Símans óháð þeim aðgangsleiðum sem Símanum er skylt að veita og samkvæmt þeim skilmálum sem samþykktir hafa verið af PFS. Hins vegar getur viðsemjandi átt rétt til aðgangs að farsímaneti sem ekki fellur að þeim tegundum aðgangs sem Síminn býður upp á, ef þær aðgangsleiðir tryggja ekki hagsmuni viðsemjanda. Beiðni um slíkan aðgang þykir að öðru leyti vera sanngjörn og eðlileg.Tali hefur ekki tekist að sýna fram á að viðmiðunartilboð Símans fyrir endursöluaðgang sé fyrirtækinu svo óhagstætt og óaðgengilegt að sanngjarnt og eðlilegt þyki að víkja til hliðar þeim almennu skilyrðum sem um aðganginn gildir. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að sá aðgangur sem Tal óskaði eftir, þ.e. áframhaldandi svæðisbundinn aðgangur að farsímaneti Símans í gegnum reikisamning Vodafone og Símans, getur ekki talist eðlileg og sanngjörn aðgangsbeiðni, eins og kveðið er á um í 1. mgr. 28. gr. fjarskiptalaga. Var Símanum því heimilt að hafna umsókn Tals um reikiaðgang að farsímaneti Símans. Ákvörðun PFS nr. 2/2009 í ágreiningsmáli IP-fjarskipta ehf. (Tals) og Símans hf. um áframhaldandi svæðisbundinn aðgang að farsímaneti Símans(PDF) - 2. mars 2009 Sjá einnig:Ákvörðun PFS nr. 13/2008 Um viðmiðunartilboð Símans um innanlandsreiki (PDF) - 9. júlí 2008 Viðauki við ákvörðun 13/2008 (PDF) Ákvörðun PFS nr. 4/2007 Um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á markaði fyrir aðgang og upphaf símtala í almennum farsímanetum (Endanlegar ákvarðanir um markaðsgreiningu / Markaður 15) - 5. febrúar 2007
26. febrúar 2009
Fjarskiptasjóður og Síminn semja um uppbyggingu háhraðanets fyrir alla landsmenn
Nánar
Fjarskiptasjóður og Síminn hafa undirritað samning um uppbyggingu háhraðanets um allt land. Með samningnum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar.Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi þann 1. mars 2009. Sjá frétt á vef samgönguráðuneytisins
5. febrúar 2009
Ný úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála
Nánar
Skipuð hefur verið ný úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála. Nefndina skipa þrjár konur: Jóna Björk Helgadóttir héraðsdómslögmaður er formaður nefndarinnar, Brynja I. Hafstensdóttir lögfræðingur og Kirstín Flygenring hagfræðingur. Nefndin er skipuð til fjögurra ára. Kristján L. Möller samgönguráðherra skipaði nefndina á grundvelli breytinga á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 117/2008, og nýrrar reglugerðar, nr. 36/2009, sem sett var í framhaldi af gildistöku laganna. Helstu breytingar felast í upptöku málskotsgjalds og því að sá aðili sem tapar máli sem til meðferðar er hjá nefndinni þarf að bera kostnað sem verður til við starfa nefndarinnar við málið. Ennfremur hafði ráðherra áður ekki heimild til þess að mæla fyrir um starfshætti nefndarinnar í reglugerð en í umsagnarferli vegna fyrrgreindrar lagabreytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun fögnuðu hagsmunaaðilar þessari heimild sérstaklega. Með nýrri reglugerð eru starfi nefndarinnar sett skýrari mörk. Sjá nánar um úrskurðarnefnd fjarskipta-og póstmála hér á vefnum.
2. febrúar 2009
Ný skýrsla um alþjóðlegt reiki í Evrópu - Verð á símtölum milli landa fer lækkandi
Nánar
European Regulatory Group (ERG), sem er samstarfsvettvangur eftirlitsstofnana í Evrópu á fjarskiptasviði, hefur sent frá sér nýja skýrslu um alþjóðlegt reiki milli landa í Evrópu fyrir tímabilið 1. apríl - 30. september 2008. Í skýrslunni eru gröf sem sýna gróflega samanburð milli landanna varðandi verð símtala í farsíma, SMS og gagnaflutnings, bæði í smásölu og heildsölu. Þar kemur fram að verð fyrir símtöl milli Evrópulanda hafa farið lækkandi en verðlagning á SMS og gagnaflutningi er mun hærra og þar er Ísland með þeim löndum sem hafa hæst verð. Innan Evrópuríkja hefur markvisst verið unnið að ráðstöfunum til að lækka verð sem neytendur þurfa að greiða fyrir farsímaþjónustu milli landa á svæðinu. Um mitt ár 2007 tóku gildi reglur innan ríkja Evrópusambandsins þar sem þak var sett á verð á símtölum í alþjóðlegu reiki. Reglurnar gilda til 30. júní 2010 og voru innleiddar formlega hér á landi í október sl. með reglugerð nr. 1046/2008, en íslensk fjarskiptafyrirtæki fóru þó að taka tillit til þeirra í verðálagningu sinni í byrjun árs 2008. Nú liggur fyrir Evrópuþinginu tillaga um reglur sem setja einnig þak á verð fyrir SMS og gagnaflutningsþjónustu. Í tillögunum er gert ráð fyrir að áðurnefndar reglur um þak á verð símtala verði framlengdar til 2013. Greidd verða atkvæði um þessa tillögu á þinginu í vor og þess er vænst að reglurnar taki gildi innan ESB í júlí nk. Væntanlega verða reglurnar síðan innleiddar hér á landi í framhaldi af því. Skýrsla ERG um alþjóðlegt reiki fyrir apríl - september 2008 (PDF) (Birt 12. janúar 2009) Á vefsíðu Evrópusambandsins um alþjóðlegt reiki má nálgast ýmsar upplýsingar um stöðu mála varðandi alþjóðlegt reiki í Evrópu.
26. janúar 2009
GSM 900 tíðnisviðið: Endurnýjaðar tíðniheimildir Nova og Vodafone
Nánar
Á síðasta ári vann Póst- og fjarskiptastofnun að stefnumótun um framtíðarskipan GSM 900 tíðnisviðsins í samráði við markaðsaðila. Ör þróun og miklar breytingar á farsímamarkaði var ein af ástæðum þess að PFS taldi sérstaka ástæðu til þess að flýta stefnumótun og taka ákvörðun um framtíðarnýtingu GSM 900 tíðnisviðsins á Íslandi. Að loknu samráði voru niðurstöður PFS birtar í ágúst sl. þar sem m.a. var ákveðið að endurútgefa með breytingum og án útboðs tíðniheimildir Nova ehf. og Og fjarskipta ehf. (Vodafone). Gildistími tíðniheimildanna er óbreyttur.