Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir sjónarmiðum markaðsaðila varðandi leigulínumarkaði

Fréttasafn
27. september 2024

Fjarskiptastofa kallar eftir sjónarmiðum markaðsaðila varðandi leigulínumarkaði

Í júní síðastliðnum sendi Fjarskiptastofa helstu markaðsaðilum er tengjast heildsölumörkuðum 4 og 14, bæði á heildsölu- og smásölustigi, spurningalista er snúa að þeim mörkuðum. Var þetta gert til að fá mynd af markaðsaðstæðum á viðkomandi heildsölumörkuðum og tengdum smásölumörkuðum. Vegna sumarfría hófu svör ekki að berast fyrr en í lok júlí og fram í september. Að undanförnu hefur Fjarskiptastofa svo fundað með þessum aðilum til að fara yfir svörin og önnur mál er varða þessa markaði.

Svör bárust frá Mílu, Ljósleiðaranum, Tengir, Snerpu, Orkufjarskiptum, Farice, Símanum, Sýn og Nova.

Til að fá enn betri mynd af markaðsaðstæðum og til að skapa auknar umræður um þau atriði sem mesti ágreiningurinn er ennþá um hefur Fjarskiptastofa ákveðið að birta þær umsagnir sem bárust og veita aðilum færi á að tjá sig um svör annarra aðila og/eða bæta við fyrri svör sín. Er þetta hluti af rannsókn málsins.

Ljóst er að ein helsta áskorunin við markaðsgreiningar þessar, auk mögulegrar landfræðilegrar aðgreiningar markaðanna, verður að ákvarða þjónustumarkaði málsins og skil á milli þeirra, þannig að tryggt sé að markaðshlutdeildartölur verði marktækar og samræmi verði í upplýsingagjöf markaðsaðila þannig að allur samanburður verði réttur.

Þau atriði sem aðilar eru helst ósammála um eru eftirfarandi:

  1. Hvaða vörur/þjónusta tilheyri hvorum heildsölumarkaði fyrir sig og jafnvel að tiltekin þjónusta, t.d. IP-MPLS, eigi að teljast sérstakur markaður utan þeirra.
  2. Möguleg landfræðileg aðgreining markaðanna.
  3. Möguleg samkeppnisvandamál á umræddum heildsölumörkuðum og tengdum smásölumörkuðum (ef ekki væru heildsölukvaðir til staðar á landsvísu eða á tilteknum svæðum).


Eftir að hafa rýnt svör aðila vel og fundað með markaðsaðilum hefur FST ákveðið að bæta við spurningu sem markaðsaðilar eru beðnir um að svara. Spurningin er eftirfarandi:

  • FST telur koma til greina að skipta þjónustumörkuðum, báðum eða öðrum þeirra í tvo undirmarkaði, markaði óvirkra innviða og virkra. Þá væru markaður fyrir aðgang að svörtum ljósleiðara (flutningsmiðill) aðgreindur frá öðrum þjónustum sem teljast samskiptareglur, t.d. bylgjulengdir, Ethernet , IP-MPLS og  aðrar slíkar vörur. Fjarskiptastofa óskar eftir áliti fyrirtækisins á þessari skiptingu sérstaklega.
     
  • Telur fyrirtækið aðra skiptingu markaða koma til greina, jafnvel í fleiri en tvo þjónustumarkaði?  Ef svo er, hver er sú skipting? Rökstyðjið.


FST tekur fram að meginreglan við skilgreiningu vöru-eða þjónustumarkaða er að meta staðgöngu milli ólíkra vara/þjónustu, sbr. t.d. II. kafli reglugerðar um markaðsgreiningar á sviði fjarskipta nr. 556/2023. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar er markmið og inntak markaðsskilgreininga að afmarka og skilgreina mörk samkeppni milli fyrirtækja og eru fyrstu aðgerðir Fjarskiptastofu í því ferli að meta hvort þörf er á að beita kvöðum gagnvart fjarskiptafyrirtækjum með umtalsverðan markaðsstyrk. Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar samanstendur viðkomandi vöru- eða þjónustumarkaður af þeim vöru- eða þjónustuflokkum sem hafa nægilega staðgöngu sín á milli í augum notenda, ekki aðeins m.t.t. eiginleika viðkomandi vöru/þjónustu, verðs eða fyrirhugaðra nota, heldur einnig með hljóðsjón af samkeppnisaðstæðum öllum og/eða samsetningar framboðs og eftirspurnar. Fjarskiptastofa skal flokka undir sama markað þær vörur/þjónustu sem neytendur nota í sama tilgangi. Tvennt í tengslum við hegðun aðila á markaði þarf þá að skoða, þ.e. eftirspurnarstaðgöngu, þ.m.t. SSNIP próf, og framboðsstaðgöngu. Í 9. gr. reglugerðarinnar eru svo fjallað um staðgöngukeðju sem getur útvíkkað mörk viðkomandi vöru- og þjónustumarkaðar.     

Svör skulu berast með tölvupósti til Guðmanns Braga Birgissonar á netfangið gudmann@fjarskiptastofa.is eigi síðar en föstudaginn 11. október nk.  

Svör markaðsaðila við upplýsingaöflun Fjarskiptastofu:
Míla
Ljósleiðarinn 
Tengir
Snerpa 
Orkufjarskipti
Farice
Síminn
Sýn
Nova