Hoppa yfir valmynd

Samráð vegna útnefningar fjarskiptafyrirtækis með alþjónustuskyldur

Fréttasafn
31. ágúst 2007

Samráð vegna útnefningar fjarskiptafyrirtækis með alþjónustuskyldur

Póst- og fjarskiptastofnun birti þann 16. maí 2007 samráðsskjal vegna útnefningar fjarskiptafyrirtækis með alþjónustuskyldur.  Alþjónusta snýst um möguleika allra notenda til að hafa aðgang að tiltekinni lágmarksþjónustu eins og hún er skilgreind í lögum um fjarskipti, óháð því hvar þeir búa eða kringumstæðum að öðru leyti, t.d. fjárhagslegum.

Núgildandi fyrirmæli um alþjónustu eru síðan 5. apríl 2005, þar sem Landssíminn hf. (nú Síminn hf.) var útnefndur sem alþjónustuveitandi.  Að stofni til var um sömu kvaðir að ræða og lagðar voru á með rekstrarleyfi fyrirtækisins þann 30. júní 1998. Þessi fyrirmæli renna út þann 31. desember 2007.  Fyrir þann tíma þarf að útnefna nýjan aðila á fjarskiptamarkaðinum hér á landi sem alþjónustuveitanda.

PFS vildi með þessu samráðsskjali fá fram sjónarmið notenda, markaðsaðila og annarra aðila sem telja sig hafa hagsmuna að gæta þannig að hægt verði að taka upplýsta ákvörðun um hvernig þessum málum verður best háttað í framtíðinni hér á landi.

Frestur til að koma að athugasemdum við samráðsskjalið var upphaflega til 18. júní 2007.  Fresturinn var síðan framlengdur til 22. ágúst 2007.

Aðeins Síminn og Félag heyrnarlausra skiluðu inn umsögnum um samráðsskjal Póst- og fjarskiptastofnunnar um útnefningu fjarskiptafyrirtækis með skyldu til að veita alþjónustu.  Umsagnirnar má sjá hér að neðan.

Fjarskipafyrirtækjum sem og öðrum hagsmunaaðilum er bent á að kynna sér umsagnirnar. Frestur til að koma með athugasemdir við þær er gefinn til 14. september nk.

Athugasemdir merktar "Alþjónusta - athugasemdir" skal senda til Póst- og fjarskiptaskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík eða í tölvupósti: fridrik@pfs.is

Sjá frétt hér á vefnum um samráðið frá 16. maí 2007