Hoppa yfir valmynd

Skipa- og flugfjarskipti

Skipafjarskipti

GMDSS (Global Maritime and Safety System) stendur fyrir alþjóðlegt neyðar- og öryggiskerfi fyrir sjófarendur. Á því byggjast neyðarfjarskipti skipa.

Skoðun fjarskiptabúnaðar og útgáfa öryggisvottorða

Skoða þarf árlega fjarskiptabúnað í öllum skipum. Í öllum tilfellum fylla skoðunarmenn út skoðunarskýrslur.

Fjarskiptastofa skoðar fjarskiptabúnað í öllum fiskiskipum lengri en 24 m. Einnig í þeim fiskiskipum undir 24 m. að lengd sem sigla út fyrir hafsvæði A1. Samgöngustofa gefur út öryggisvottorð fyrir þessi skip.

Faggildar skoðunarstofur skoða fjarskiptabúnað í bátum og skipum sem eingöngu sigla á hafsvæði A1. Skoðunarstofurnar senda skoðunarskýrslur til Fjarskiptastofu sem gefur út öryggisvottorð fyrir viðkomandi skip/báta.

Skoðunarhandbók (Fjarskiptabúnaður fiskiskipa undir 24 metrum sem einungis sigla á A1 svæði)

Fjarskiptastofa skoðar fjarskiptabúnað í öðrum skipum svo sem farþegaskipum og flutningaskipum. Á grundvelli skoðunarskýrslu gefur stofnunin út öryggisvottorð fyrir þessi skip.

Skilgreining hafsvæða

Kröfur um búnað ráðast af því hafsvæði sem skipið hefur heimild til að sigla á (A1 , A2, A3 og A4).

  • Hafsvæði A1: Er hafsvæði sem takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á metrabylgju (VHF).

  • Hafsvæði A2: Er svæði utan við hafsvæði A1, sem takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á millibylgju (MF).

  • Hafsvæði A3: Er svæði utan hafsvæða A1 og A2, sem takmarkast af langdrægi kyrrstæðra INMARSAT gervihnatta til sendinga viðvarana, þ.e. milli 70° N og 70° S

  • Hafsvæði A4: Er svæði utan hafsvæða A1, A2 og A3.

Númer skipa

Í eftirfarandi skrám er að finna upplýsingar um númer sem úthlutað hefur verið til íslenskra skipa:

MMSI (AIS, DSC og 406 MHz neyðarbaujur), Standard C og Selcall (Radíótelex):

Númeraskrárnar (Excel skjöl) uppfærðar síðast: 07.11.2024

MMSI númer skipa - í MMSI númeraröð

MMSI númer skipa - eftir skipaskrárnúmeri

VHF sjófarstöðvarásir

Viðauki 18 í alþjóðaradíóreglugerðinni.

VHF sjófarstöðvarásir.pdf

Flugfjarskipti

Um fjarskipti við flugvélar og fjarskiptabúnað um borð í þeim gilda sérstakar reglur.

Leyfisbréf fyrir fjarskiptabúnað

Fyrir fjarskiptabúnað um borð í öllum flugvélum skal vera leyfisbréf, útgefið af Fjarskiptastofu.

Umsókn um leyfisbréf fyrir tækjabúnað í flugvél  (Rafrænt umsóknareyðublað)

Þeir sem annast fjarskipti um borð í flugvélum verða að hafa til þess tilskilin réttindi.

Frekari upplýsingar veitir Hörður R. Harðarson.