Samráð um skilmála uppboðs á tíðniheimildum fyrir háhraða farnetsþjónustu
Samráð um skilmála uppboðs á tíðniheimildum fyrir háhraða farnetsþjónustu
Frá því að tíðniheimildum til að veita þriðju kynslóðar farsímþjónustu (3G) var úthlutað á árinu 2007 hefur gagnamagn í farnetum margfaldast. Með tilkomu fjórðu kynslóðar farnetsþjónustu á árinu 2013 jókst framboð á ýmiss konar þjónustutegundum sem krefjast mikillar bandvíddar, s.s. myndmiðlun og skráarskipti af ýmsu tagi. Á síðustu árum hefur notkun á ýmsum smáforritum í snjallsímum einnig farið vaxandi, auk þess sem vinsælir samskiptamiðlar hafa verið gerðir aðgengilegri fyrir snjallsíma.
Vegna þessarar miklu aukningar á gagnanotkun í farnetum og fyrirsjáanlegrar þróunar á næstu árum er orðin aðkallandi þörf fyrir að taka frekari tíðnisvið til notkunar fyrir 4G farnetsþjónustu. Í tilefni af umsókn frá Símanum hf. um að fá úthlutun á tíðnum á 700 MHz tíðnisviðinu, efndi Póst- og fjarskiptastofnun til samráðs við markaðsaðila í mars sl., m.a. í þeim tilgangi að kanna eftirspurn meðal þeirra eftir viðbótartíðnum fyrir farnetsþjónustur. Samráðið leiddi í ljós að flestir markaðsaðilar töldu þörf á viðbótartíðnum og því ljóst að eftirspurn væri a.m.k. jafn mikil og framboð, hvað varðar 700 MHz og 2100 MHz tíðnisviðin. Markaðsaðilar voru flestir einnig á þeirri skoðun, ásamt Póst- og fjarskiptastofnun, að taka skyldi 2600 MHz tíðnisviðið til notkunar fyrir farnetsþjónustu.
Niðurstaða samráðsins var því sú að PFS myndi, að fengnu samþykki ráðherra sem nú liggur fyrir, efna til uppboðs á tíðniheimildum á 700, 2100 og 2600 MHz tíðnisviðunum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þær tíðniheimildir og helstu upplýsingar um forsendur og skilyrði sem tengjast uppboðinu:
| Númer | Stærð | Tíðnisvið | Þjónusta | Svæði | Gildistími | Lágmarksboð | Útbreiðslukröfur |
| A 700 | 2x10 MHz | 703-713 / 758-768 MHz | Farnet | Landið allt | 15 ár | 35 milljónir kr. | Já |
| B 700 | 2x10 MHz | 713-723 / 768-778 MHz | Farnet | Landið allt | 15 ár | 35 milljónir kr. | Já |
| C 700 | 2x10 MHz | 723-733 / 778-788 MHz | Farnet | Landið allt | 15 ár | 35 milljónir kr. | Já |
| D 2100 | 2x5 MHz | 1935 - 1940 / 2125 - 2130 MHz | Farnet | Landið allt | 5 ár | 5,5 milljónir kr. | Nei |
| E 2100 | 2x5 MHz | 1970 - 1975 / 2160 - 2165 MHz | Farnet | Landið allt | 5 ár | 5,5 milljónir kr. | Nei |
| F 2100 | 2x5 MHz | 1975 - 1980 / 2165 - 2170 MHz | Farnet | Landið allt | 5 ár | 5,5 milljónir kr. | Nei |
| G 2600 | 2x20 MHz | 2500 - 2520 / 2620 - 2640 MHz | Farnet | Landið allt | 10 ár | 10 milljónir kr. | Nei |
| H 2600 | 2x20 MHz | 2520 - 2540 / 2640 - 2660 MHz | Farnet | Landið allt | 10 ár | 10 milljónir kr. | Nei |
| I 2600 | 2x10 MHz | 2540 - 2550 / 2660 - 2670 MHz | Farnet | Landið allt | 10 ár | 5 milljónir kr. | Nei |
| J 2600 | 2x10 MHz | 2550 - 2560 /2670 - 2680 MHz | Farnet | Landið allt | 10 ár | 5 milljónir kr. | Nei |
| K 2600 | 2x10 MHz | 2560 - 2570 / 2680 - 2690 MHz | Farnet | Landið allt | 10 ár | 5 milljónir kr. | Nei |
Nánar er fjallað um réttindi og skyldur sem fylgja tíðniheimildunum, skilmála og framkvæmd uppboðsins í drögum að uppboðskilmálum sem finna má hér fyrir neðan ásamt tilheyrandi fylgiskjölum.
Stefnt er að því að uppboðið fari fram fyrir lok þessa árs.
PFS kallar hér með eftir samráði við hagsmunaðila um efni uppboðsskilmálanna.
Frestur til að skila athugsemdum við fyrirhugaða uppboðsskilmála er veittur til 1. nóvember nk. Umsagnir og athugasemdir skulu sendar Sigurjóni Ingvasyni á netfangið sigurjon(hjá)pfs.is.
Sjá nánar í samráðsskjölum:
- Uppboðsskilmálar ásamt þátttökublaði (pdf)
- Viðauki 1 - Skýrsla Mannvits um greiningu sendastaða
- Viðauki 2 - Leiðbeiningar BEREC um innleiðingu á reglum um nethlutleysi
- Viðauki 3 - Reglugerð nr. 2015/2120/EB um ráðstafanir varðandi opinn netaðgang (PDF skjal)