Svikaskilaboð, reynsla neytenda og tjón af þeirra völdum
Svikaskilaboð, reynsla neytenda og tjón af þeirra völdum
Fjarskiptastofa hefur látið gera neytendakönnun um algengi og reynslu neytenda af svikaskilaboðum eða netsvikum. Könnunin var framkvæmd af Gallup í seinni hluta desember síðastliðnum í kjölfar hrinu svikasímtala sem íslenskir símnotendur fengu í miklum mæli um nokkurra daga skeið fyrr í sama mánuði.
Markmið könnunarinnar var:
- að mæla hve stór hluti neytenda fær skilaboð um fjarskiptaþjónustu sem eru tilraunir til svika
- hvort einhverjar samskiptaleiðir eru algengari en aðrar til að bera slík skilaboð og þá hverjar
- hvert er hlutfall neytenda sem hafa orðið fyrir tjóni vegna slíkra svika
- hvert slíkt tjón er, fjárhagslegt eða annað og þá um hvaða upphæðir er að ræða
Í könnuninni kom í ljós að mikill meirihluti neytenda hefur fengið svikaskilaboð á síðustu misserum og eru tölvupóstur algengasta leiðin en rúmlega 76% neytenda hafa fengið svikaskilaboð í tölvupósti, samfélagsmiðlar þar á eftir með nærri 72% og SMS skeyti minnst algeng en þó hafa nærri 62% neytenda fengið svikaskilaboð um SMS.
Af samfélagsmiðlum sker Facebook sig úr, en nærri 66% hluta neytenda hafa fengið svikaskilaboð þar á undanförnum tveimur árum, Instagram kemur næst með nærri 22%.
Nokkuð líklegt má telja að mikil notkun Íslendinga á Facebook hafi áhrif á þessa niðurstöðu, því þar sem könnunin mældi ekki samfélagsmiðlanotkun sérstaklega er ekki hægt að segja til um hvort algengi svikaskilaboða sé meiri á einhverjum samfélagsmiðli en en öðrum út frá þessum niðurstöðum einum og sér.
Tjón mælist ekki algengt, en tæp 6% neytenda hafi þó orðið fyrir því. Slíkt tjón er nær alltaf fjárhagslegt eða hjá 95% þeirra sem hafa orðið fyrir tjóni af völdum netsvika. Einnig verða neytendur fyrir því tjóni að glata aðgangi að þjónustu eða vefsvæði, eða orðið fyrir annars kyns óþægindum.
Umtalsverðar fjárhæðir eru nefndar þegar spurt er um það, en þó dreifðust svör þeirra sem skýrðu frá slíku tjóni frá undir 10 þúsund krónum til yfir 300 hundrum þúsundum. Hafa verður í huga að fá svör eru að baki þeim svörum, svo ekki er hægt að byggja mjög á þessum niðurstöðum, en þær benda þó til að meðaltjón sé um eða yfir 100 þúsund krónum.
Hér meðfylgjandi er skjal með helstu niðurstöðum og greiningu þeirra.