Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum
Fréttasafn
27. júní 2024
Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum
Birtar hafa verið nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum. Fjarskiptastofa hefur unnið að endurskoðun á verklagsreglunum með hliðsjón af nýjum fjarskiptalögum nr. 70/2022. Við endurskoðunina yfirfór stofnunin öll ákvæði verklagsreglnanna og var hagsmunaðilum gefinn kostur á því að koma á framfæri athugasemdum og tillögum að breytingum á meðan henni stóð.
Helstu breytingar sem gerðar voru á verklagsreglunum eru eftirfarandi:
- Breytingar hafa verið gerðar á skilgreiningum. Þar má nefna að hugtakið endanotandi kemur í stað áskrifanda. Þá er fjallað nánar um hugtakið viðbótarupplýsingar en um það er fjallað í athugasemd við um 93. gr. frumvarps til fjarskiptalaga nr. 70/2022.
- Í 6. gr. hafa verið gerðar breytingar svo að það samræmist betur orðalagi 1. mgr. 93. gr. fjarskiptalaga.
- Í 7. gr. reglnanna er áréttað að fjarskiptafyrirtæki eigi tryggi rekjanleika breytingabeiðna.
- Í 10. gr. hefur því verið bætt að aðilar geti komið sér saman um annars konar skráarsnið en XML
- Nýtt ákvæði er að finna í 12. gr. reglnanna en því ætlað er að tryggja að upplýsingar endanotanda fari ekki forgörðum við flutning á milli fjarskiptafyrirtækja með því að notast sé við flutningsstöðu þar til að flutningsferli er lokið.
Hér fyrir neðan má nálgast hinar nýju verklagsreglur.