Hoppa yfir valmynd

Leiðbeiningar í aðdraganda kosninga

Fréttasafn
11. nóvember 2024

Leiðbeiningar í aðdraganda kosninga

Alþingiskosningar fara fram 30. nóvember næstkomandi. Í ljósi þess hafa Fjölmiðlanefnd, Fjarskiptastofa, CERT-IS og Persónuvernd, í samstarfi við landskjörstjórn og Ríkislögreglustjóra, sett saman leiðbeiningar til stjórnmálasamtaka eða einstaka framboða um rétt einstaklinga til réttra upplýsinga, öryggis, friðhelgi, persónuverndar og markaðssetningar. Þá geta leiðbeiningarnar einnig nýst almenningi til upplýsinga um þau lög og reglur sem gilda í aðdraganda kosninga.

Fjarskiptastofa (FST) telur einnig rétt að minna á það að stjórnmálasamtökum eða einstaka framboðum ber að fara að ákvæðum laga nr. 70/2022 um fjarskipti sem setja skorður við óumbeðnum fjarskiptum í formi beinnar markaðssetningar. Stofnunin vill því koma á framfæri helstu reglum sem gilda um  óumbeðin fjarskipti og hvernig slíkum kvörtunarmálum er jafnan háttað hjá stofnuninni. 

Leiðbeiningar í aðdraganda kosninga

Leiðbeiningar Fjarskiptastofu um óumbeðin fjarskipti

Kvörtun til Fjarskiptastofu vegna óumbeðinna fjarskipta

Sjá einnig upplýsingar á vef Persónuverndar og á vef Fjölmiðlanefndar.