Úrskurður ÚFP í máli nr. 6/2024 - kæra Félags heyrnarlausra á ákvörðun FST nr. 10/2024
- gr. Réttur til alþjónustu á viðráðanlegu verði
Kærð var ákvörðun FST nr. 10/2024 þar sem Fjarskiptastofa hafnaði kröfu Félags heyrnalausra um myndsímatúlkaþjónustu félli undir alþjónustuhugtakið. Í hinni kærðu ákvörðun var niðurstaðan sú að slík kvöð yrði ekki lögð á fjarskiptafyrirtæki, eitt eða fleiri, án skýrrar lagaheimildar um að slík þjónusta falli undir alþjónustuhugtakið eða ákvörðun væri tekin um slíkt af ráðherra. Í fjarskiptalögum nr. 70/2022 og í alþjónustureglugerð nr. 1100/2022 væri ekki gert ráð fyrir að slík þjónusta yrði felld undir alþjónustu. Því var óhjákvæmilegt fyrir stofnunina að hafna kröfu félagsins.
Í málinu komst úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála að sömu niðurstöðu, þ.e. að það skorti stoð í lögum og reglum svo að hægt væri að fella myndsímatúlkaþjónustu undir alþjónustuhugtakið.Var kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar, á þeim grunni að myndsímatúlkaþjónusta falli undir alþjónustu, hafnað. Þá var ekki fallist á kröfu kæranda um að ef ekki yrði talið að myndsímatúlkaþjónusta félli undir alþjónustu þá bæri FST samt sem áður að tryggja aðgang að þjónustunni á grundvelli hlutverks stofnunarinnar um að tryggja hagkvæma, örugga, aðgengilega fjarskiptaþjónustu fyrir alla landsmenn. Hin kærða ákvörðun var því staðfest.