Úrskurður ÚFP í máli nr. 2/2026 – kæra Mílu á hluta ákv. FST nr. 12/2025
Kærður var sá hluti ákvörðunar FST nr. 12/2025 þar sem stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að Míla hefði brotið gegn gagnsæiskvöð samkvæmt ákvörðun PFS nr. 21/2015 vegna framboðs félagsins á „Alien Wavelength“ (AWL) bylgjuflutningsþjónustu. Jafnframt var Mílu gert að uppfæra viðmiðunartilboð sitt fyrir leigulínur og framkvæma kostnaðargreiningu á AWL bylgjuflutningsþjónustunni.
Í málinu féllst úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála á það með Fjarskiptastofu að AWL þjónusta Mílu félli undir kvaðir samkvæmt ákvörðun PFS nr. 21/2015. Nefndin taldi að bylgjulengdardeiling í ljósleiðurum, þar á meðal með DWDM-tækni, félli undir viðkomandi markað og að þjónusta sem byggir á sömu flutningsaðferð, svo sem AWL bylgjuflutningsþjónusta Mílu, lyti sömu markaðsskilgreiningu og sömu kvöðum og hefðbundin bylgjuflutningsþjónusta.
Í úrskurði sínum benti nefndin á að kvöðum á fjarskiptamarkaði væri almennt ætlað að standast tæknilega þróun og því væri orðalag þeirra gjarnan víðtækt og tæknilega hlutlaust. Taldi nefndin að markaðsskilgreiningin í ákvörðun PFS nr. 21/2015 væri nægilega víðtæk og sveigjanleg til að halda gildi sínu þrátt fyrir breytingar á tækni og flutningsmiðlum. Því væru ekki forsendur til að líta svo á að þjónusta sem uppfyllir efnisleg skilyrði leigulínu sé undanþegin kvöðinni á þeim grundvelli einum að rekstrarfyrirkomulag hennar sé frábrugðið eða að annar aðili stýri flutningi þjónustunnar.
Hin kærða niðurstaða í ákvörðun FST nr. 12/2025 var því staðfest í heild sinni.