Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
1/2026
Heiti
Óviljandi reikinotkun
Dagsetning
18.02.2026
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Neytendamál
Lagagreinar
  1. gr. Hámarksverð fyrir reikiþjónustu og millilandafjarskipti.
Reifun

Fjarskiptastofu barst kvörtun vegna gjaldfærslu fyrir gagnareiki. Kvartandi taldi óheimilt að rukkað hefði verið fyrir reiki þegar hann var staddur í Liechtenstein, þar sem heimaverðskrá (e. Roam Like at Home) gildir. Af gögnum málsins var ljóst að kvartandi hafði dvalið í Sviss áður en hann fór til Liechtenstein og að umrædd gjaldfærsla byggðist á notkun í svissnesku fjarskiptaneti. Tæki hans hafði því tengst farneti í öðru ríki en hann var staddur í og var um að ræða óviljandi reiki (e. inadvertent roaming). Ágreiningur málsins laut að því hvort Sýn hf. hefði verið heimilt að gjaldfæra samkvæmt verðskrá fyrir reiki í Sviss við þær aðstæður sem uppi voru.

Í reikireglugerð ESB er umfjöllun um óviljandi reiki takmörkuð við tilvik þar sem einstaklingar eru búsettir á landamærasvæðum og dvelja að jafnaði í heimaaðildarríki sínu, án þess að ferðast yfir landamæri. Regluverkið tekur ekki til tilvika þar sem ferðamaður fer milli ríkja og farsímatæki hans tengist fjarskiptaneti utan Sambandsins.

Fjarskiptastofa komst að þeirri niðurstöðu að Sýn hf. hefði ekki brotið gegn 54. gr. fjarskiptalaga með því að gjaldfæra kvartanda samkvæmt gildandi reikisamningi við svissneskan viðsemjanda vegna notkunar í farneti þess, þótt kvartandi hafi á sama tíma verið staddur í Liechtenstein. Niðurstaðan byggðist m.a. á því að netval á landamærasvæðum getur verið tæknilega flókið og að heimafjarskiptafyrirtæki hefur hvorki raunhæfa né tæknilega möguleika til að tryggja að símtæki viðskiptavina tengist sjálfkrafa tilteknu farneti við ferðalög yfir landamæri. Slík fyrirtæki hafa jafnframt ekki aðgang að landfræðilegri staðsetningu viðskiptavina í rauntíma.

Þótt almennt verði ekki gert ráð fyrir að viðskiptavinir búi yfir sértækri tækniþekkingu á virkni farsímakerfa eða geti með öruggum hætti tryggt að tæki þeirra tengist hverju sinni réttu neti, leiddu atvik málsins engu að síður ekki til þess að talið yrði að brotið hefði verið gegn gildandi lögum eða reglum.

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð