Hoppa yfir valmynd

2G og 3G útfösun

3G farsímakerfinu hefur verið verið lokað um allt land

Lokun á 3G farsímaþjónustu á Íslandi er nú lokið. Það þýðir að GSM símar og önnur tæki sem reiða sig á 3G ná ekki lengur farsímasambandi.

Markmiðið er betri þjónusta til framtíðar, en breytingarnar geta haft áhrif á þá notendur sem nota eldri síma eða búnað sem styður ekki 4G/5G og VoLTE (símtöl yfir 4G).

Varanúmer +354 5990112 ef ekki næst samband við 112

Ef ekki tekst að tengjast 112 eða símtal rofnar vegna tæknilegra vandamála er hægt að hringja í númerið +354 5990112.

Sjá nánari leiðbeiningar á vef Neyðarlínunnar.

Hvað þýðir lokun 3G fyrir almenna notendur?

Langflestir munu ekki finna fyrir breytingum. Vandamál geta þó komið upp hjá notendum sem:

  • nota eldri farsíma sem styðja aðeins 2G eða 3G
  • eru með síma sem styðja ekki VoLTE eða hafa þá stillingu óvirka
  • nota tæki sem treysta á 3G fyrir símtöl (t.d. CSFB-lausnir)
  • eru með síma keypta erlendis sem ekki eru stilltir fyrir íslensk farsímanet

Slík tæki geta hætt að virka að fullu þegar 3G er slökkt – þar á meðal fyrir símtöl.

Brýnt öryggisatriði: símtöl í 112

Eftir lokun 3G er nauðsynlegt að símtæki styðji 4G/5G og VoLTE til að tryggja öruggan aðgang að neyðarnúmerinu 112.

Prufunúmer 1280

Til að hjálpa notendum að ganga úr skugga um að síminn virki eftir lokun 3G hefur verið sett á laggirnar prufunúmerið 1280. Eigendur eldri síma og síma keyptra erlendis eru sérstaklega hvattir til að nota 1280

  • Hringdu í 1280 til að kanna hvort síminn þinn nái sambandi við 112
  • ALLS EKKI hringja í 112 til að prófa samband – það getur truflað raunveruleg neyðarsímtöl

Ef fjarskiptafyrirtæki hefur sent tilkynningu um að uppfæra eða skipta um tæki er mikilvægt að bregðast við strax.

Tilkynningar um truflanir á farsímasambandi eftir lokun 2G/3G

Ef þú upplifir breytingar á farnetssambandi eftir að 2G/3G sendar hafa verið teknir niður, þá er fyrsta skrefið að athuga hvort tækið þitt styður 4G/5G og hvort framleiðandi/seljandi hefur virkjað VoLTE í tækinu.
Sendu tilkynningu til Fjarskiptastofu

Fyrir ferðaþjónustuaðila

Erlendir ferðamenn geta verið í aukinni áhættu ef þeir nota:

  • síma sem styðja aðeins 2G eða 3G
  • síma sem ekki styðja VoLTE á íslenskum netum

Mörg lönd eru einnig að loka 2G/3G, og því getur eldri búnaður valdið sambandsleysi bæði á Íslandi og erlendis.

Ferðaþjónustuaðilar eru því hvattir til að:

  • upplýsa ferðamenn um mikilvægi 4G/5G-síma
  • benda á prufunúmerið 1280
  • tryggja að öryggis- og neyðarbúnaður styðji 4G/5G

Hvað ættu notendur að gera núna?

  • Athuga hvort síminn styðji 4G/5G og VoLTE
  • Ganga úr skugga um að VoLTE sé virkt í stillingum
  • Prófa símtækið með því að hringja í 1280
  • Hafa samband við fjarskiptafyrirtæki ef óvissa er um búnað

Hvar finn ég nánari upplýsingar?

Útbreiðslukort

Vefsjá Fjarskiptastofu: https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/vefsja-fjarskiptastofu/
Vefsjáin er hugsuð til upplýsinga fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu og þróun fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu.

Aðrar leiðbeiningar um úrræði til heimila og vinnustaða vegna ótryggs farnetssambands