Hoppa yfir valmynd

Samráð um verklagsreglur um skráningu og miðlun símaskrárupplýsinga

Fréttasafn
29. nóvember 2023

Samráð um verklagsreglur um skráningu og miðlun símaskrárupplýsinga

Stjórnsýsluumhverfi sem varða umsýslu símaskrárupplýsinga hefur tekið nokkrum breytingum við gildistöku nýju fjarskiptalaganna á síðasta ári. Nú telst upplýsingaþjónusta um símaskrárupplýsinga ekki lengur til skilgreindrar alþjónustu. Með því hefur heimild FST til afskipta af slíkri þjónustu minnkað að sumu leyti, t.d. varðandi verðlagningu þjónustunnar til notenda. Það reyndi þó aldrei á það úrræði í tíð eldri laga

Eftir sem áður getur Fjarskiptastofa skyldað öll fjarskiptafyrirtæki, sem úthluta endanotendum símanúmerum, til að verða við beiðnum um að láta í té viðkomandi upplýsingar í númera- og vistfangaskrám þeirra í formi sem aðilar koma sér saman um, þ.m.t. tölvutæku formi, og með skilmálum sem eru sanngjarnir, tryggja jafnræði og byggjast á kostnaði ásamt hæfilegri álagningu. Fjarskiptastofa hefur túlkað þetta ákvæði á þá leið að stofnunin sé bær til að leysa úr mögulegum ágreiningi aðila um framkvæmdina og útfærslu hennar, s.s. um kostnað miðlunarinnar.

Þar sem að gert er ráð fyrir að númera- og vistfangaskrám sé miðlað á því formi sem aðilar koma sér saman um telur Fjarskiptastofa að viðkomandi hagaðilar hafi nokkuð víðtækt svigrúm til að móta framkvæmdina, enda séu þeir sammála um hana. Fjarskiptastofa hefur þó talið til bóta að skjalfesta skilgreiningu á grunnupplýsingum símaskrárupplýsinga sem eru andlag upplýsingamiðlunarinnar og tæknilega ferla sem byggt er á við framkvæmd hennar. Að höfðu samráði við hagaðila voru árið 2016 gefnar út óskuldbindandi verklagsreglur um skráningu og miðlun símaskrárupplýsinga.

Síðan þá hefur sameiginlegu gagnagrunnshaldi um símaskrárupplýsingar verið hætt og ný fjarskiptalög tekið gildi. Fjarskiptastofa taldi tímabært að endurskoða verklagsreglurnar til samræmis við breytta framkvæmd og uppfæra þær eftir þörfum í ljósi reynslu undanfarinna ára. Í júlí s.l. voru hagaðilar beðnir um að gera tillögur að breytingum. Fjarskiptastofa hefur nú tekið saman skjal sem hefur að geyma texta gildandi verklagsreglna með fram komnum breytingatillögum sem Fjarskiptastofa telur koma til álita að fallast á.

Fjarskiptastofa telur vera tilefni að efna til opins samráðs við alla hagaðila um drög að endurskoðuðum verklagsreglum áður en þær verða gefnar út.

Frestur til að skila inn umsögnum er veittur til 29. desember 2023       

Samráðsskjal um endurskoðaðar verklagsreglur