Hoppa yfir valmynd

Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum

Fréttasafn
27. júní 2024

Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum

Birtar hafa verið nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum. Fjarskiptastofa hefur unnið að endurskoðun á verklagsreglunum með hliðsjón af nýjum fjarskiptalögum nr. 70/2022. Við endurskoðunina yfirfór stofnunin öll ákvæði verklagsreglnanna og var hagsmunaðilum gefinn kostur á því að koma á framfæri athugasemdum og tillögum að breytingum á meðan henni stóð.

Helstu breytingar sem gerðar voru á verklagsreglunum eru eftirfarandi:

  • Breytingar hafa verið gerðar á skilgreiningum. Þar má nefna að hugtakið endanotandi kemur í stað áskrifanda. Þá er fjallað nánar um hugtakið viðbótarupplýsingar en um það er fjallað í  athugasemd við um 93. gr. frumvarps til fjarskiptalaga nr. 70/2022.   
  • Í 6. gr. hafa verið gerðar breytingar svo að það samræmist betur orðalagi 1. mgr. 93. gr. fjarskiptalaga. 
  • Í 7. gr. reglnanna er áréttað að fjarskiptafyrirtæki eigi tryggi rekjanleika breytingabeiðna.  
  • Í 10. gr. hefur því verið bætt að aðilar geti komið sér saman um annars konar skráarsnið en XML
  • Nýtt ákvæði er að finna í 12. gr. reglnanna en því ætlað er að tryggja að upplýsingar endanotanda fari ekki forgörðum við flutning á milli fjarskiptafyrirtækja með því að notast sé við flutningsstöðu þar til að flutningsferli er lokið.

 

Hér fyrir neðan má nálgast hinar nýju verklagsreglur.

Verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um endanotendur sem úthlutað hefur verið númerum í föstum netum og farnetum.