Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um drög að kvöðum á heildsölumörkuðum fyrir staðaraðgang (3a) og miðlægan aðgang með fasttengingu (3b) og eftir aukasamráði um sértækar breytingar á drögum að mati á umtalsverðum markaðsstyrk á afmörkuðum landfræðilegum mörkuðum viðkomandi heildsölumarkaða

Fréttasafn
29. nóvember 2023

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um drög að kvöðum á heildsölumörkuðum fyrir staðaraðgang (3a) og miðlægan aðgang með fasttengingu (3b) og eftir aukasamráði um sértækar breytingar á drögum að mati á umtalsverðum markaðsstyrk á afmörkuðum landfræðilegum mörkuðum viðkomandi heildsölumarkaða

Í kjölfar fyrra samráðs um fyrri hluta draga að markaðsgreiningu á heildsölumörkuðum fyrir staðaraðgang með fasttengingu og miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur og útnefningar fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk á landfræðilegum mörkuðum viðkomandi heildsölumarkaða hefur Fjarskiptastofa (FST) nú lokið við frumdrög að kvöðum sem áformað er að leggja á slík fyrirtæki á viðkomandi mörkuðum.

Um er að ræða markaði 3a og 3b í tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um viðkomandi markaði frá 2016. Greiningunni og fyrirhugaðri ákvörðun um kvaðir er ætlað að leysa af hólmi  bráðabirgðaákvörðun FST nr. 9/2023 frá 15. september sl., sem leysti af hólmi ákvörðun FST nr. 5/2021, dags. 19. október 2021, eins og henni var breytt með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá 29. desember 2022.

Frumdrög þau sem nú eru lögð fram til samráðs innihalda drög að greiningu á samkeppnisvandamálum á viðkomandi heildsölumörkuðum og drög að viðeigandi kvöðum sem fyrirhugað er að lagðar verði á þau fyrirtæki sem hljóta útnefningu sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk samkvæmt þeirri útnefningu sem lýst var í fyrra samráðsskjali.

Óskar stofnunin nú viðbragða fjarskiptafyrirtækja og annarra hagsmunaaðila við þeim frumdrögum sem hér eru lögð fram, sbr. 6. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu.

Samráðsskjalið er aðgengilegt hér á PDF formi.

 

Aukasamráð um sértækar breytingar í greiningu á markaðsstyrk í þremur sveitarfélögum.

Um leið kallar FST eftir samráði um sértækar breytingar á drögum að mati á umtalsverðum markaðsstyrk á afmörkuðum landfræðilegum mörkuðum, frá því sem birt var í fyrra samráðinu þann 15. september 2023.

Í kjölfar athugasemda sem bárust í fyrra samráði um drög að markaðsgreiningu og útnefningu aðila með umtalsverðan markaðsstyrk og í ljósi nýrra tölfræðigagna frá miðju ári 2023 leggur FST hér fram afmarkaðar breytingar á þeim drögum.

Nánar tiltekið er um að ræða breytt mat á stöðu aðila með umtalsverðan markaðsstyrk í þremur sveitarfélögum. Í Súðavíkurhreppi var áætlað að útnefna Mílu með umtalsverðan markaðsstyrk á báðum mörkuðum 3a og 3b, en nú er áformað að meta samkeppni í sveitarfélaginu virka á viðkomandi mörkuðum. Í Vopnafjarðarhreppi var samkeppni í sveitarfélaginu metin virk á markaði 3a en nú er áformað að útnefna Tengir sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á viðkomandi markaði í sveitarfélaginu. Útnefning Mílu sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á markaði 3b í Vopnafjarðarhreppi er ekki breytt. Þá er Austurljóss nú útnefnt sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk í Fljótsdalshreppi á markaði 3b, en áður hafði sá markaður verið metinn í virkri samkeppni í sveitarfélaginu. Þá er að finna í aukasamráðinu endurskoðaða umfjöllun um stöðu samkeppninnar í Seltjarnarnesbæ í ljósi nýrra gagna, en þau breyta að mati FST ekki stöðunni í því sveitarfélagi, þ.e. að þar ríki virk samkeppni á báðum mörkuðum.

Aukasamráð þetta er takmarkað við það samráðsskjal sem hér er lagt fram og þær breytingar sem þar er lýst. Ekki verður tekið við nýjum athugasemdum um fyrra samráðsskjalið.

Aukasamráðsskjalið er aðgengilegt hér á PDF formi.

 

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum um þau drög sem hér eru lögð fram er til og með miðvikudagsins 3. janúar 2024. Í ljósi þeirrar tímapressu sem er á málinu, þar sem framangreind bráðabirgðaákvörðun fellur úr gildi eigi síðar en 1. mars 2024, og eftir er að fara með drögin í formlegt 30 daga samráð við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) verður ekki unnt að veita lengri frest til athugasemda.  

Allar athugasemdir skulu gerðar í aðgreindum skjölum vegna hvors samráðs, þar sem með greinanlegum hætti er vísað skal til þeirra liða sem um ræðir.

Beinir FST því sérstaklega til hagsmunaaðila að fara skal eftir leiðbeinandi tilmælum um umsagnir við markaðsgreiningar.

Sjá leiðbeinandi tilmæli um umsagnir hagaðila í tengslum við markaðsgreiningar.

Nánari upplýsingar veitir Guðmann Bragi Birgisson, netfang: gudmann@fjarskiptastofa.is

Athugasemdir aðila frá samráðum verða birtar að skilafrestum liðnum.

Að samráðsfresti liðnum FST hyggst birta athugasemdir sem berast í þessum samráðum báðum sem og athugasemdir frá fyrra samráði. 

Því er þess óskað, ef athugasemdir innihalda gögn sem skulu njóta trúnaðar, að annað eintak fylgi  þar sem trúnaðargögn hafi verið afmáð.