Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptafyrirtæki óheimilt að afhenda skattrannsóknarstjóra fjarskiptagögn einstaklings

Fréttasafn
20. mars 2025

Fjarskiptafyrirtæki óheimilt að afhenda skattrannsóknarstjóra fjarskiptagögn einstaklings

Fjarskiptastofa (FST) hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjarskiptafyrirtæki sé óheimilt að afhenda skattrannsóknarstjóra fjarskiptagögn tiltekins notanda hjá fjarskiptafyrirtækinu Hringdu ehf., sbr. ákvörðun nr. 2/2025. Ákvörðunin var tekin eftir að Hringdu ehf. leitaði til stofnunarinnar vegna beiðni skattrannsóknarstjóra um upplýsingar um eiganda eða notanda ákveðinnar IP-tölu, ásamt staðsetningarupplýsingum um hann, en fyrirtækið hafði ekki áður veitt slíkar upplýsingar öðrum en lögreglu. Frummat FST á túlkun viðkomandi ákvæðum fjarskiptalaga var á þá leið að Hringdu ehf. væri óheimilt að afhenda skattrannsóknarstjóra umbeðin gögn. Skattrannsóknarstjóri andmælti þeirri frumniðurstöðu og færði fram sjónarmið og lagarök máli sínu til stuðnings. Var því óhjákvæmilegt að taka formlega og kæranlega ákvörðun í málinu.

Samkvæmt niðurstöðu FST fellur beiðni skattrannsóknarstjóra ekki undir þær undantekningar sem fjarskiptalög nr. 70/2022 gera ráð fyrir varðandi aðgang að fjarskiptaumferðargögnum um notendur. Lögin kveða á um að slík gögn megi einungis afhenda lögreglu eða ákæruvaldi í þágu rannsókna sakamála og þá að jafnaði að fengnum dómsúrskurði. FST leit svo á að skattrannsóknarstjóri hefði ekki stöðu lögreglu eða handhafa ákæruvalds í skilningi laga um meðferð sakamála og fjarskiptalaga og hefði því ekki sjálfstæða heimild til að óska eftir þessum gögnum.

Í ákvörðuninni vísaði FST til bæði evrópskrar og innlendrar fjarskiptalöggjafar er varðar friðhelgi einkalífsins og fjarskiptaleynd sem á sér langa sögu og staðfasta framkvæmd í íslenskum fjarskiptarétti. Stofnunin benti á að Evrópudómstóllinn hefur ítrekað lagt áherslu á að aðgangur stjórnvalda að fjarskiptagögnum verði að vera nauðsynlegur, takmarkaður og byggja á skýrum lagaheimildum. FST taldi að almennar reglur persónuverndarlaga um gagnaöflunarheimildir lögbærra yfirvalda ekki nægja til að veita undanþágu frá sértækari ákvæðum fjarskiptalaga um vernd slíkra gagna. Ríkar og víðtækar gagnaöflunarheimildir stjórnvalda á borð við skattrannsóknarstjóra geta ekki vikið til hliðar sérstökum vinnsluskilyrðum sem gilda um fjarskiptaumferðarupplýsingar notenda.

Ákvörðun nr. 2/2025