Númer
2/2025
Heiti
Aðgangur Skattsins að fjarskiptaumferðargögnum
Dagsetning
14.03.2025
Málsaðilar
Málaflokkur
Friðhelgi einkalífs
Lagagreinar
- gr. Gögn um fjarskipti.
Reifun
Fjarskiptastofa (FST) hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjarskiptafyrirtæki sé óheimilt að afhenda skattrannsóknarstjóra fjarskiptagögn tiltekins notanda hjá fjarskiptafyrirtækinu Hringdu ehf.
Samkvæmt niðurstöðu FST fellur beiðni skattrannsóknarstjóra ekki undir þær undantekningar sem fjarskiptalög nr. 70/2022 gera ráð fyrir varðandi aðgang að fjarskiptaumferðargögnum um notendur. Lögin kveða á um að slík gögn megi einungis afhenda lögreglu eða ákæruvaldi í þágu rannsókna sakamála og þá að jafnaði að fengnum dómsúrskurði. FST leit svo á að skattrannsóknarstjóri hefði ekki stöðu lögreglu eða handhafa ákæruvalds í skilningi laga um meðferð sakamála og fjarskiptalaga og hefði því ekki sjálfstæða heimild til að óska eftir þessum gögnum.
Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð