Endurútgáfa tíðniheimilda fjarskiptafélaganna og Öryggisfjarskipta í dag
Endurútgáfa tíðniheimilda fjarskiptafélaganna og Öryggisfjarskipta í dag
Í dag gaf Fjarskiptastofa út að nýju með breytingum tíðniheimildir fjarskiptafélaganna þriggja, Símans, Nova og Sýn sem upphaflega voru gefnar út 21. mars 2023. Þá gaf Fjarskiptastofa einnig út í dag að nýju með breytingum tíðniheimild Öryggisfjarskipta sem upphaflega var gefin út 27. maí 2022.
Útgáfan núna var gerð í framhaldi af samráði sem Fjarskiptastofa efndi til vegna breytinga á forsendum eldri tíðniheimilda fjarskiptafélaganna og Öryggisfjarskipta er vörðuðu aðkomu Öryggisfjarskipta að uppbyggingu nýrra sendastaða við stofnvegi og uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis.
Með endurútgáfu tiðniheimildanna og þeim breytingum sem þær fela í sér frá fyrri útgáfu er það von Fjarskiptastofu að tekist hafi að tryggja áframhaldandi uppbyggingu öflugs fjarskiptakerfis á Íslandi við stofnvegi hér á landi næstu tvo áratugina.
Þá mun þessi breyting stuðla enn betur að skilvirkri nýtingu tíðnisviðsins, auðlind sem Fjarskiptastofu ber skylda að lögum að tryggja að sé nýtt á sem hagkvæmastan hátt fyrir samfélagið.