Úrskurðarnefnd hafnar kröfu Útvarps Sögu um frestun réttaráhrifa.
Úrskurðarnefnd hafnar kröfu Útvarps Sögu um frestun réttaráhrifa.
Með úrskurði 2. desember sl. hafnaði úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála kröfu Útvarps Sögu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 15/2016. Með þeirri ákvörðun synjaði Póst- og fjarskiptastofnun umsókn Útvarps Sögu um úthlutun á aukatíðni fyrir höfuðborgarsvæðið og lagði fyrir stöðina að hætta notkun á tíðninni 102,1 MHz þar sem tímabundin heimild til prófana á tíðninni var löngu útrunnin.
Í forsendum úrskurðarnefndar kemur m.a. fram að hin kærða ákvörðun hafi ekki í för með sér að útsendingar kæranda muni stöðvast, heldur er um óbreytta starfsemi að ræða frá því sem var áður en mál þetta hófst.
Póst- og fjarskiptastofnun getur því framfylgt ákvörðun sinni og gripið til viðeigandi aðgerða, skv. 1. mgr. 62. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003, til þess að stöðva óheimila notkun á tíðninni 102,1 MHz. Málið mun síðan fá hefðbundna meðferð hjá úrskurðarnefndinni þar sem fjallað verður um efnishlið málsins.
Póst- og fjarskiptastofnun áréttar að Útvarpi Sögu hefur staðið til boða að fá tíðnina 102,1 MHz gegn því að skila inn tíðninni 99,4 MHz og stendur það boð enn.
Sjá úrskurð úrskurðarnefndar í heild:
Úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála um frestun réttaráhrifa í máli nr. 7/2016