Drög að nýju rekstrarleyfi Íslandspósts hf. til umsagnar
Fréttasafn
18. október 2007
Drög að nýju rekstrarleyfi Íslandspósts hf. til umsagnar
Þann 31. desember n.k. fellur núgildandi rekstrarleyfi Íslandspósts hf. úr gildi. Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert drög að nýju rekstrarleyfi fyrir fyrirtækið.
Allir sem láta sig þjónustu Íslandspósts varða geta sent athugasemdir eða ábendingar um drögin til Póst- og fjarskiptastofnunar.
Skjalið er hægt að nálgast hér fyrir neðan.
Frestur til að skila athugasemdum er til og með 8. nóvember n.k.