Samráð um fyrirhugaða alþjónustuútnefningu Neyðarlínunnar ohf.
Samráð um fyrirhugaða alþjónustuútnefningu Neyðarlínunnar ohf.
Almennt landsdekkandi grunnet fjarskipta á Íslandi (fastanetið), auk staðbundinna ljósleiðaraneta sem byggð hafa verið upp á umliðnum árum, tengja öll lögheimili og vinnustaði með heilsársatvinnustarfsemi á landinu (staðföng), með örfáum undantekningum. Í einstaka tilvikum hefur kostnaður við tengingu verið það hár, t.d. vegna fjarlægðar frá símstöð, erfiðra landfræðilegra skilyrða o.s.frv., að ekki hefur verið hægt að tengja staðfang með fastanetstengingu. Hafa þá verið farnar aðrar leiðir til að koma á fjarskiptasambandi, t.d. yfir örbylgju, gervihnött eða með því að gera ráðstafanir til að móttaka og magna farsímamerki, ef þess hefur verið kostur.
Í september árið 2020 útnefndi Póst- og fjarskiptastofnun Neyðarlínuna ohf. (Neyðarlínan) sem alþjónustuveitanda fjarskiptatenginga fyrir síma- og internetþjónustu sökum þess að Síminn hf. hóf lokun á gamla rásaskipta talsímakerfinu (PSTN). Var það hlutverk Neyðarlínunnar að hafa umsjón með því að fjarskiptateningar væru settar upp þegar þörf væri á í samstarfi við önnur fjarskiptafyrirtæki. Niðurlagning PSTN kerfisins lauk nú í vor og gildistími útnefningar Neyðarlínunnar rennur út í lok ársins.
Nú hefur fjarskiptafélagið Míla hf. tilkynnt um að félagið sé að leggja niður koparnetið á næstu misserum. Samkvæmt Mílu hf. er gert ráð fyrir að niðurlagning koparsins haldist í hendur við ljósleiðaravæðingu. Fjarskiptastofa telur að það megi gera ráð fyrir að í flestum tilvikum geti endanotandi notið fullnægjandi fjarskiptatengingu yfir farnet. Þó eru samkvæmt frumathugun stofnunarinnar um 100 staðföng víðsvegar um landið sem fá ekki notið fullnægjandi farnetsþjónustu við niðurlagningu koparsins, eins og staðan er í dag. Ætlunin er að hrinda af stað átaksverkefni til að bæta gæði fjarskiptasambands á umræddum stöðum.
Með tilliti til framangreinds hefur Fjarskiptastofa í hyggju að útnefna Neyðarlínuna ohf. sem alþjónustuveitanda fjarskiptatenginga fyrir síma- og netaðgangsþjónustu í þessum sérstöku tilvikum. Unnið verður að bættum gæðum fjarskiptasambands, þar sem þess er þörf, yfir gildistíma alþjónustuútnefningarinnar sem fyrirhuguð er til 31. desember 2028. Stofnunin efnir nú til opins samráðs við markaðsaðila og almenning um þessi áform.
Frestur til að skila umsögn er veittur til 3. júní 2024.