Hoppa yfir valmynd

Netöryggi og seigla samfélagsins í brennidepli á netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu

Fréttasafn
15. október 2026

Netöryggi og seigla samfélagsins í brennidepli á netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu

Í tilefni af alþjóðlegum netöryggismánuði stendur Fjarskiptastofa fyrir netöryggisráðstefnu þriðjudaginn 27. október á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. 
Yfirskrift ráðstefnunnar er„Netöryggi – seigla samfélagsins á tímum stafrænna ógna“.

Á ráðstefnunni koma saman sérfræðingar, stjórnendur, fulltrúar opinberra aðila og atvinnulífsins ásamt erlendum gestafyrirlesurum til að fjalla um stöðu netöryggismála, þróun ógnana og mikilvægi samstarfs við að efla seiglu samfélagsins. 

Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að aukinni þekkingu og efla umræðu um netöryggi, þjóðaröryggi og vernd mikilvægra innviða. Jafnframt verður fjallað um hvernig stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir geta unnið saman að því að styrkja viðnámsþrótt Íslands gagnvart stafrænum ógnum.

Meðal fyrirlesara eru fulltrúar frá NATO, sænsku netöryggismiðstöðinni NCSC-SE, fjarskiptayfirvöldum á Grænlandi auk sérfræðinga frá Fjarskiptastofu, Landsneti og Syndis. Þá verður einnig boðið upp á arinspjall og pallborðsumræður um áskoranir og tækifæri á sviði netöryggis. 

Ráðstefnan er öllum opin og skráning fer fram á vef Fjarskiptastofu.

Hvenær? Þriðjudagurinn 27. október 2026 kl. 08:30–12:30
Hvar? Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 

Skráið ykkur hér

 

Dagskrá:
08:20 – 08:50 Hús opnar, móttaka gesta & spjall
08:50 – 08:55 Fundarstjóri setur ráðstefnuna - Védís Hervör Árnadóttir | Kópavogsbær
08:55 – 09:05 Ávarp innviðaráðherra - Eyjólfur Ármannsson
09:05 – 09:15 Opnun ráðstefnu - Hrafnkell V. Gíslason | Fjarskiptastofa
09:15 – 09:35 Responding to Evolving Threats: Strengthening Euro-Atlantic Security, Deterrence and Defence - Ben Hiller | NATO (á ensku)
09:35 – 09:55 From Compliance to Cyber Resilience: The European Journey and Sweden’s Experience - Johan Turell | NCSC-SE (á ensku)
09:55 – 10:15 When the World Moves Closer to Greenland - Hans Henrik Grabe | Telestyrelsen Greenland (á ensku)
10:15 – 10:40 Arinspjall - Stjórnandi: Alma Tryggvadóttir
10:40 – 11:00 Kaffihlé
11:00 – 11:20 Netöryggisumhverfið á Íslandi í dag - Unnur Kristín Sveinbjarnadóttir | Fjarskiptastofa
11:20 – 11:35 Öryggi og áskoranir við að verja mikilvæga innviði - Styrmir Geir Jónsson | Landsnet
11:35 – 11:50 Netöryggi í stjórnendastólum – reynslan úr atvinnulífinu - Guðjón Ingi Ágústsson | Syndis
11:50 – 12:20 Pallborðsumræður - Stjórnandi: Hjálmar Gíslason

 

Munið að huga að umhverfinu - Nýtum vistvæna ferðamáta til og frá ráðstefnustað eftir fremsta megni. Strætóstoppið við Hilton heitir Engjateigur.
Þar stoppa leiðir nr: 104-17-15-5 og 2 á austurleið og nr: 17-15-5 og 2 á vesturleið.