Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um endurskoðun á gjaldskrá Mílu fyrir ljóslínur í aðgangsneti

Fréttasafn
16. október 2026

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um endurskoðun á gjaldskrá Mílu fyrir ljóslínur í aðgangsneti

 Fjarskiptastofa (FST) hefur lokið við yfirferð á kostnaðargreiningu Mílu hf. (Mílu) á ljóslínum í aðgangsneti (einn þráður og eitt par). Þær vörur sem verðskrá Mílu nær til tilheyra heildsölumarkaði fyrir lúkningarhluta leigulína sem er markaður nr. 2 samkvæmt tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá árinu 2025.

Samkvæmt meðfylgjandi drögum að ákvörðun hyggst FST samþykkja kostnaðargreiningu Mílu með þeim breytingum sem gerðar voru við meðferð greiningarinnar hjá stofnuninni.

Í ákvörðunardrögunum er vitnað til ákvörðunar stofnunarinnar nr. 4/2026 um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 en sú ákvörðun verður birt á næstu dögum.   

Drög þessi byggja á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 8/2014 um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir lúkningarhluta leigulína, dags. 6. maí 2014, sem nú er markaður 2.

Niðurstaða kostnaðargreiningar Mílu er að gjald fyrir ljóslínu í aðgangsneti, eitt par, hækkar úr 19.681 kr. í 24.013 kr. sem er um 22% hækkun. Ljóslínur einn þráður hækkar til samræmis. Mjög langt er síðan núverandi verð tók gildi, eða rúmlega 7 ár, og er hækkunin undir hækkun verðlags frá þeim tíma.

Hér með er fjarskiptafyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir vegna þeirra draga sem hér liggja fyrir, sbr. 24. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinanlegum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir. Þegar FST hefur metið framkomnar athugasemdir og gert þær breytingar á frumdrögunum sem stofnunin telur nauðsynlegar mun FST senda drögin til ESA til samráðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 13. nóvember nk.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Þ. Daðason (netfang: snorri(hjá)fjarskiptastofa.is). FST mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.

Innanlandssamráð - Ljóslínur í aðgangsneti