Framþróun í gervigreind kallar á markvissari netvarnir
Framþróun í gervigreind kallar á markvissari netvarnir
Framfarir í gervigreind eru að breyta landslagi netöryggis og skapa nýjar áskoranir fyrir rekstraraðila upplýsingakerfa. Arnar Freyr Guðmundsson, fagstjóri netvarna og prófana netöryggis á netöryggissviði Fjarskiptastofu, fjallar um þessa þróun í grein sem birtist á visir.is þann 5. október sl. Í greininni er fjallað um hvernig gervigreind getur stytt þann tíma sem ógnaraðilar þurfa til að finna og greina bæði óþekkta og þekkta veikleika, afla upplýsinga og undirbúa netárásir.
Áhættumiðuð meðferð veikleika verður mikilvægari
Arnar Freyr leggur áherslu á að meðferð öryggisveikleika sé samfelld og byggi á mati á raunverulegri áhættu. Ekki sé nægilegt að horfa eingöngu til tæknilegs alvarleikastigs veikleika heldur einnig til þess hvort þeir séu þegar nýttir í árásum, hversu aðgengileg kerfin eru og hvaða áhrif mögulegt atvik gæti haft á starfsemi og þjónustu.
Mikilvægt er að rekstraraðilar hafi góða yfirsýn yfir búnað, hugbúnað og þjónustu sem þeir reiða sig á. Uppfærð eignaskráning auðveldar viðbrögð þegar upplýsingar um nýja veikleika berast og styður við markvissari forgangsröðun úrbóta.
Undirbúningur og viðbragðsgeta skipta sköpum
Þegar hætta er yfirvofandi getur þurft að grípa til tímabundinna aðgerða, svo sem að takmarka aðgang að kerfum eða auka vöktun, á meðan unnið er að varanlegum úrbótum. Skýrar ábyrgðir, skilgreindar samskiptaleiðir og reglulegar æfingar á viðbragðsáætlunum eru meðal þeirra þátta sem geta styrkt viðnámsþrótt starfsemi.
Í greininni leggur Arnar Freyr jafnframt áherslu á að rekstraraðilar fylgist með líftíma búnaðar og hugbúnaðar. Þegar framleiðandi hættir að veita öryggisstuðning er ekki lengur hægt að treysta á reglulegar öryggisuppfærslur. Því er mikilvægt að gera ráðstafanir tímanlega, til dæmis með uppfærslu, endurnýjun eða útskiptingu búnaðar, eða öðrum viðeigandi mótvægisráðstöfunum.
Áhrifin ná einnig til aðfangakeðjunnar
Veikleikar geta haft áhrif á marga rekstraraðila samtímis þegar þeir tengjast lausnum eða þjónustu sem er í víðtækri notkun. Því er mikilvægt að verklag vegna veikleikastjórnunar nái einnig til hugbúnaðar og þjónustu birgja og að skýrar boðleiðir séu til staðar milli aðila.
Þrátt fyrir að gervigreind geti aukið getu ógnaraðila getur tæknin einnig nýst til varna, meðal annars við greiningu veikleika, yfirferð niðurstaðna prófana og undirbúning úrbóta. Niðurstöður slíkrar vinnu þarf þó ávallt að sannreyna og tryggja að breytingar fari í gegnum skilgreint breytingastjórnunarferli.
Lesið greinina í heild á Vísi: Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika.