Hoppa yfir valmynd

Úttekt á notkun vefþjónustuaðila á vefkökum – úrbóta þörf

Fréttasafn
19. febrúar 2025

Úttekt á notkun vefþjónustuaðila á vefkökum – úrbóta þörf

vefkökuskann

Flestir kannast við þegar vefsíður eru heimsóttar að gert sé viðvart um að notaðar séu svo kallaðar vefkökur (e. cookies) og fólk beðið um að samþykkja, hafna eða velja stillingar fyrir vinnslunni. Þessir valmöguleikar eru þó ekki alltaf í boði – einn eða fleiri.

Líkja má vefkökum við nokkurs konar atburðarskráningu á vefsíðum gagnvart notendum. Vefkökur eru þannig notaðar til að fylgjast með og tryggja virkni á vefsíðum. Vefkökur geta einnig verið notaðar til að afla upplýsinga um atferli einstaklinga á vefsíðum, t.d. með því að kortleggja áhugasvið notenda eða kauphegðun þeirra í markaðslegum tilgangi. Þess háttar vinnsla getur verið ópersónugreinanleg, en getur líka verið tengd við skráðan reikning einstaklings. Lagalegar kröfur um form gera þó ekki greinarmun á þessu tvennu.

Af þessum sökum gilda ákveðnar reglur um fræðslu á notkun á vefkökum á vefsvæðum og skilyrði um samþykki notenda þegar það á við. Fjarskiptastofa taldi vera tilefni til þess að gera frumkvæðisúttekt á framkvæmd þjónustuaðila sem sérhæfa sig sem milliliðir í vöru- og þjónustuframboði á internetinu, s.k. vefþjónustuaðilar. Slíkir aðilar reiða sig á samskipti við viðskiptavini um internetið varðandi vöru- og þjónustukaup.

Fjarskiptastofa framkvæmdi úttekt á notkun á vefkökum hjá átta af vinsælum vefþjónustuaðilum hér á landi með það að markmiði að kanna fylgni við þær formkröfur sem gerðar eru fyrir notkun á vefkökum. Frumniðurstaða úttektarinnar, sem nú er birt, gefur til kynna að talsverðra úrbóta sé almennt þörf varðandi notkun á vefkökum, t.d. skortir á fullnægjandi fræðslu til notenda og formkröfur um samþykki þeirra, þegar það á við.

Niðurstöðuskýrsla úttektarinnar hefur að geyma fróðleik um vefkökur og leiðbeiningar um skyldur aðila sem Fjarskiptastofa skorar á atvinnulífið að kynna sér og hafa til eftirbreytni. Í framhaldi verður farið í að fylgja eftir niðurstöðum úttektarinnar gagnvart þeim vefþjónustuaðilum sem voru hluti af úttektinni, en endanleg niðurstaða um framkvæmd einstakra aðila mun ekki liggja fyrir fyrr en að fengnum sjónarmiðum og skýringum þeirra.

Skýrsla um frumniðurstöðu úttektarinnar