Traust fjarskipti eru þjóðaröryggismál
Traust fjarskipti eru þjóðaröryggismál
Traust og öruggt fjarskiptakerfi er forsenda þess að samfélagið geti starfað eðlilega, ekki síst þegar á reynir. Í nýlegri grein Unnar Kristínar Sveinbjarnardóttur, sviðstjóra netöryggissviðs, á Vísi er fjallað um fjarskipti sem lykilinnviði og mikilvægi þeirra fyrir þjóðaröryggi.
Ísland er í fremstu röð í heiminum þegar kemur að fjarskiptum og stafrænni þjónustu. Öflug fjarskiptanet eru lífæðar samfélagsins og skapa grunn fyrir rafræn samskipti, opinbera þjónustu, viðskipti og daglegt lífi fólks um allt land. Þessi árangur hefur skapað mikil tækifæri, en hann kallar jafnframt á ábyrgð, þ.e. að tryggja að fjarskiptainnviðir landsins séu ekki aðeins öflugir, heldur einnig öruggir og áfallaþolnir.
Ógnirnar sem við stöndum frammi fyrir eru bæði fjölbreyttar og vaxandi. Netárásum fjölgar stöðugt, þjónustukerfi og birgjakeðjur verða sífellt flóknari, gervigreind er komin til sögunnar og óvissa í alþjóðastjórnmálum hefur bein áhrif á öryggi ríkja. Í þessu samhengi er ekki lengur nægilegt að treysta á að kerfin virki vel við eðlilegar aðstæður, heldur verða þau einnig að standast skipulagðar árásir og óvænt áföll.
Netöryggi fjarskipta er víðtækt. Fjarskiptanet teljast net- og upplýsingakerfi í evrópskri netöryggislöggjöf og verndarandlag hennar nær bæði til kerfanna sjálfra sem og raunlægra innviða, svo sem tækjarýma, sendibúnaðar, strengja og varaafls. Gæta þarf að öllum tegundum ógna og áhættu, svo sem náttúruvá, rekstraráhættu, netógna og mögulegra skemmdarverka. Velja verndarráðstafanir og stöðugt uppfæra áhættumat og áhættuvilja.
Í greininni er m.a. vísað til áhættumats Fjarskiptastofu á fjarskiptainnviðum landsins, þar sem bent er á að markaðurinn einn og sér tryggi ekki nægjanlega seiglu gagnvart sjaldgæfum eða mjög umfangsmiklum áföllum. Þar segir Unnur m.a.:
„Hér er bil á milli þess sem markaðurinn einn og sér getur staðið undir og þess sem samfélagið þarfnast, þá sér í lagi m.t.t. almannahagsmuna og þjóðaröryggis.“
Slík áföll geta haft víðtæk áhrif á almenning, neyðar- og viðbragðsþjónustu, mikilvæga innviði og þar með þjóðaröryggi í heild. Þróun stafræns samfélags eykur enn frekar kröfur til öryggis, áreiðanleika og samfellu í fjarskiptum.
Áfallaþol er lykillinn að trausti. En netöryggi og áfallaþol felur ekki aðeins í sér að verja kerfi og innviði, heldur að byggja upp getu til að þola áföll, bregðast við þeim og ná upp þjónustu aftur ef til útfalls kemur. Slík geta er ekki sjálfgefin heldur krefst markvissrar stefnu, skipulags, samstarfs og fjárfestinga. Netöryggi og áfallaþol eru grunnforsendur trausts bæði hjá almenningi og hjá þeim sem reiða sig á fjarskipti í rekstri og opinberri þjónustu.
Fjarskiptastofa vinnur að því að brúa þetta bil með markvissri stefnumótun, regluverki og eftirliti, í nánu samstarfi við fjarskiptafyrirtæki og aðra hagaðila. Markmiðið er að tryggja að fjarskipti á Íslandi standist þær kröfur sem gerðar eru til lykilinnviða í nútímasamfélagi.
Greinina eftir Unni má lesa í heild sinni á Vísi.