Hoppa yfir valmynd

Taktu þátt í einföldun regluverks og þjónustu hins opinbera

Fréttasafn
18. nóvember 2025

Taktu þátt í einföldun regluverks og þjónustu hins opinbera

ATHUGIÐ - Frestur til að skila inn ábendingum hefur verið framlengdur ti 19. janúar 2026.

Innviðaráðuneytið stendur nú fyrir víðtækri könnun um einföldun regluverks og umbætur á þjónustu ráðuneytisins og stofnana þess. Markmiðið er að greina hvar óþarfar eða flóknar hindranir geta legið – hvort sem snýr að einstaklingum, fyrirtækjum, sveitarfélögum eða félagasamtökum.

Könnunin opnaðist 14. nóvember í Samráðsgátt stjórnvalda og stendur til 19. desember nk. Hvetjum við alla sem eiga erindi við ráðuneytið eða stofnanir þess til að taka þátt og leggja sitt af mörkum.

Innviðaráðuneytið mun vinna úr þeim ábendingum sem berast. Ábendingar sem snúa að okkar starfssviði verða metnar sérstaklega í samstarfi við ráðuneytið, með það að markmiði að einfalda ferla, bæta leiðbeiningar, efla stafræna þjónustu og greina hvort laga- eða reglugerðarbreytingar séu nauðsynlegar.

Fjarskiptastofa tekur undir þessi markmið IRN og hvetur til þátttöku í könnunni.

Taktu þátt og hjálpaðu til við að móta skilvirkara og betra regluverk:
Nánar um könnunina á vef ráðuneytisins.