Hoppa yfir valmynd

Samráð við ESA um drög að ákvörðun varðandi heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur

Fréttasafn
02. júlí 2026

Samráð við ESA um drög að ákvörðun varðandi heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur

Í dag sendi Fjarskiptastofa ákvörðunardrög varðandi kostnaðargreiningu Mílu hf. á heildsöluverðum fyrir ljósbylgjur til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).

Fjarskiptastofa hyggst samþykkja umrædda kostnaðargreiningu Mílu hf. fyrir ljósbylgjur.

Í meðfylgjandi drögum er forsendum og aðferðum við greiningu á kostnaði lýst nánar. Í viðauka I er lýsing á því hvernig vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) er ákvarðað.

Frumdrög að ákvörðun um heildsölugjaldskrá fyrir ljósbylgjur fór í innanlandssamráð sem stóð frá 6. maí til 8. júní 2026. Engar athugasemdir bárust stofnuninni í samráðinu.

Ákvörðunardrögin hafa nú verið send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs með vísan til 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og tilmæla ESA frá 2025 um slíkt samráð. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur Fjarskiptastofa formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að Fjarskiptastofa dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.  

Ákvörðunardrögin og viðaukar
Drög að ákvörðun um kostnaðargreiningu Mílu vegna ljósbylgna
Viðauki I WACC 2025

Skjölin á ensku
Draft decision on Mila's cost analysis for optical waves
Appendix I WACC 2025