Hoppa yfir valmynd

Samráð um innleiðingu á ákvörðun ECC/DEC/(22)02 - Afnám heimildar til AIS-merkinga á netabaujum

Fréttasafn
21. maí 2026

Samráð um innleiðingu á ákvörðun ECC/DEC/(22)02 - Afnám heimildar til AIS-merkinga á netabaujum

Fjarskiptastofa (FST) efnir til samráðs um fyrirhugaða innleiðingu á ákvörðun ECC/DEC/(22)02 hér á landi. Innleiðingin mun fela í sér að notkun AIS-kerfisins til merkinga á netabaujum og öðrum veiðarfærum verður aflögð að loknu aðlögunartímabili. 

AIS (Automatic Identification System) er alþjóðlegt sjálfvirkt auðkenningarkerfi skipa og er eitt helsta öryggistæki sjófarenda. Á undanförnum árum hefur aukist notkun á baujum og öðrum búnaði sem sendir AIS-merki til að sýna staðsetningu veiðarfæra. Áhyggjur hafa vaknað um að of margir sendar á sömu rásum AIS kerfisins geti dregið úr afkastagetu þess með því að valda árekstrum í merkjasendingum og þar með skert öryggi á sjófarenda. 

Í ákvörðun ECC/DEC/(22)02 er sjálfvirkum fjarskiptatækjum á sjó (Autonomous Maritime Radio Devices; AMRD) skipt upp í tvo flokka, A og B tæki. Ákvörðunin kveður um að notkun AIS-rása fyrir AMRD-tæki í flokki B (þar á meðal netabaujur) verði óheimil. 

FST ráðgerir að ný úthlutun MMSI (Maritime Mobile Service Identity)-númera fyrir netabaujur og önnur tæki í flokki B verði hætt 1. september 2026 og að núverandi notendum verði veittur frestur til 31. desember 2026 til að hætta notkun AIS-netabauja. Eftir það verður notkun AIS til merkinga á netabaujum og sambærilegum búnaði í flokki B óheimil. 

FST bendir á að til staðar eru aðrar tæknilausnir til staðsetningar og vöktunar sem hafa ekki áhrif á AIS-kerfið og að framboð sé af búnaði sem getur komið í stað AIS-netabauja. Samkvæmt ECC/DEC/(22)02 skulu AMRD-tæki í flokki B nota rás 2006 (160,900 MHz) eða aðrar löglegar leiðir til staðsetningar. 

FST óskar eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila um fyrirhugaða breytingu, þar á meðal um áhrif hennar á starfsemi, mögulegar tæknilausnir og hvort fyrirhugaður aðlögunartími sé fullnægjandi. 

Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi samráðsskjali. 

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 19. júní nk. Umsagnir skulu sendar á hjalti(hjá)fjarskiptastofa.is. 

Samráð um fyrirhugað bann við merkingar á veiðarfærum í AIS