Hoppa yfir valmynd

Samráð um frumvarp til breytinga á fjarskiptalögum

Fréttasafn
25. september 2025

Samráð um frumvarp til breytinga á fjarskiptalögum

Í gær fór af stað opið samráð á vegum innviðaráðuneytisins um tilteknar breytingar á fjarskiptalögum. Sjá samráðsgátt stjórnvalda: https://island.is/samradsgatt/mal/4067

Í greinargerð sem fylgir frumvarpinu kemur fram að markmið laganna sé að auka netöryggi hér á landi, fjarskiptaöryggi til og frá landinu, gera fjarskiptalög skýrari og nýta heimildir til töku auðlindagjalds að tíðniheimildum.

Greint er frá því að megintilgangur frumvarpsins sé þríþættur. Í fyrsta lagi að heimila fjarskiptafyrirtækjum með lögum að skima valkvætt tölvupósta og smáskilaboð til að fyrirbyggja svik í fjarskiptum og verja heildstæði fjarskiptaneta. Í öðru lagi að renna styrkari stoðum undir ákvæði sem vernda fjarskiptastrengi í sjó. Í þriðja lagi að setja sérstakt gjaldtökuákvæði fyrir úthlutun og afnot af fjarskiptatíðnum eða svo kölluð auðlindagjöld.

Þá er að finna í frumvarpinu nokkrar minniháttar orðalagsbreytingar á ákvæðum fjarskiptalaga í þeim tilgangi að eyða óskýrleika í lagatexta og gera lagatæknilegar umbætur, t.d. að því er varðar framsetningu sektarheimilda.

Fjarskiptastofa hvetur hagaðila til að kynna sér fyrirhugaðar lagabreytingar og koma á framfæri sínum sjónarmiðum til ráðuneytisins , ef svo ber undir. Í samráðsgáttinni kemur fram að samráðið standi til 8. október nk.