Samráð um endurskoðun á málsmeðferðarreglum Fjarskiptastofu
Samráð um endurskoðun á málsmeðferðarreglum Fjarskiptastofu
Árið 2020 gaf þáverandi Póst- og fjarskiptastofnun út reglur um málsmeðferð hjá stofnuninni, sbr. reglur nr. 710/2020. Markmið reglnanna var að auka gagnsæi í málsmeðferð Póst- og fjarskiptastofnunar við töku stjórnvaldsákvarðana og stuðla að því að stjórnsýslumál væru vel rannsökuð og úrlausn þeirra í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.
Stuttu eftir útgáfu reglnanna voru gerðar gagngerar breytingar á því lagaumhverfi sem Fjarskiptastofa starfar í. Ber þar aðallega að nefna að sett voru ný lög um stofnunina nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og fjarskiptalög voru tekin til heildarendurskoðunar með nýjum fjarskiptalögum nr. 70/2022 sem innleiddu síðustu fjarskiptatilskipun Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 2018/1972/EU. Því hefur staðið til um nokkurn tíma að uppfæra málsmeðferðarreglur stofnunarinnar.
Fjarskiptastofa kynnir nú drög að endurskoðuðum reglum og gefur hagaðilum kost á að gera athugasemdir við þau. Breytingarnar felast aðallega í því að uppfæra lagatilvísanir á viðeigandi stöðum. Í drögunum er einnig að finna minniháttar efnisbreytingar um tiltekin atriði, t.d. um kærur á bráðabirgðaákvörðunum, álagningu stjórnvaldssekta og neytendakvartanir gagnvart traustþjónustuveitendum. Allar breytingartillögur eru merktar og sjáanlegar í drögunum. Fjarskiptastofa gerir ekki athugasemdir við það ef umsagnaraðilar kjósa að skila athugasemdum sínum inni í Word skjalinu.
Í ljósi þess að fyrirhugaðar breytingar eru afmarkaðar og minniháttar gerir Fjarskiptastofa ekki ráð fyrir að birta sérstakt niðurstöðuskjal samráðsins með svörum við athugasemdum umsagnaraðila. Þess í stað verður umsagnaraðilum svarað beint ef tilefni þykir til.
Senda skal umsagnir á netfangið fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is og umsagnarfrestur stendur til 6. ágúst nk.
Drög að málsmeðferðarreglum FST