Hoppa yfir valmynd

Samráð um drög að verklagsreglum um samræmda gagnaöflun Fjarskiptastofu

Fréttasafn
05. desember 2023

Samráð um drög að verklagsreglum um samræmda gagnaöflun Fjarskiptastofu

Fjarskiptastofa sinnir fjölbreyttum verkefnum við framþróun fjarskiptamarkaðar. Hafa þessi verkefni m.a. það markmið að efla samkeppni neytendum til hagsbóta, auka aðgengi almennings að háhraða gagnaflutningsþjónustu og stuðla að öryggi fjarskiptaneta og auknum gæðum þjónustunnar. Slíkum verkefnum hefur farið fjölgandi á undanförnum árum, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu á fjarskiptainnviðum og eftirlit með öryggi þeirra.  Mörg af þessum verkefnum kalla á umfangsmikla gagnaöflun um fjarskiptainnviðina, markaðs- og samkeppnisaðstæður, rekstrarafkomu fjarskiptafyrirtækja, auk upplýsinga um stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis og öryggisráðstafanir fjarskiptafyrirtækja.

Tekið skal fram að gagnasöfnun Fjarskiptastofu getur einnig tekið til annarra eftirlitsskyldra aðila sem ekki starfa á fjarskiptamarkaði, s.s. rekstraraðila stafrænna grunnvirkja og veitendur stafrænnar þjónustu, sbr. NIS löggjöfina, eða á sviði traustþjónustu og/eða rafrænnar auðkenningar.    

Viðvarandi og reglubundin upplýsingasöfnun er orðin svo umfangsmikil að nauðsynlegt þykir að skipuleggja hana með breyttu verklagi. Fjarskiptastofa áformar að gefa út verklagsreglur um samræmda gagnaöflun stofnunarinnar. Verklagsreglunum er ætlað að auka skilvirkni í reglubundnum gagnaöflunum Fjarskiptastofu, auka enn frekar öryggi gagna og auka gagnsæi og fyrirsjáanleika fyrir aðila um framkvæmdina. Verklagsreglunum og það verklag sem af þeim leiðir er jafnframt ætlað að einfalda og auðvelda aðilum að vinna úr gagnabeiðnum, auk þess að stuðla að betra samræmi í framsetningu á svörum.

Liður í breyttu fyrirkomulagi gagnaöflunar er að birta yfirlit yfir væntanlegar gagnabeiðnir Fjarskiptastofu fyrir komandi ár. Ráðgert er að birta slíkt yfirlit árlega til að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika um upplýsingasöfnun Fjarskiptastofu. Stefnt er að því að upplýsingasöfnun eigi sér stað í gegnum rafræna upplýsingagátt, en hönnun og útfærsla hennar liggur ekki fyrir enn sem komið er. Leiðbeint verður um það sérstaklega þegar þar að kemur.  

Verklagsreglurnar snúa fyrst og fremst inn á við í starfsemi Fjarskiptastofu, þ.e. þær varða skipulag, útfærslu og framkvæmd gagnasöfnunar samkvæmt fyrir fram skilgreindum ferlum. En eðli málsins samkvæmt hafa verklagsreglurnar einnig áhrif á eftirlitsskylda aðila sem þurfa að gera ráðstafanir til að laga sig að samræmdu verklagi gagnasöfnunar. Eins og fyrr segir er markmiðið m.a. að einfalda og auðvelda ferlið. Af þessum ástæðum telur Fjarskiptastofa vera tilefni til að kalla eftir sjónarmiðum eftirlitsskyldra aðila um efni verklagsreglnanna og hvort þær séu til þess fallnar að ná markmiðum sínum. Einnig eru allar góðar ábendingar um það sem betur megi fara varðandi gagnaöflun stofnunarinnar vel þegnar.

Drög verklagsreglnanna eru birt á Word skjali. Skila má athugasemdum með merktum breytingum og athugasemdum gerðum á því skjali (track changes og comments).

Frestur til að skila umsögnum er veittur til 5. janúar 2024. Athugasemdum skal skila með tölvupósti á netfangið fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is.

Drög að verklagsreglum (Microsoft Word)

Yfirlit um fyrirséðar gagnabeiðnir fyrir árið 2024 (Microsoft Excel)