Hoppa yfir valmynd

Samráð um beitingu sérstakrar undanþáguheimildar vegna gjaldskrár fyrir ríkisstyrkta fjarskiptainnviði

Fréttasafn
08. júlí 2026

Samráð um beitingu sérstakrar undanþáguheimildar vegna gjaldskrár fyrir ríkisstyrkta fjarskiptainnviði

Fjarskiptastofu barst erindi, dags. 9. febrúar 2026, frá fjarskiptafyrirtækinu Húnaneti ehf. um að fá samþykkta tiltekna undanþágu frá almennri gjaldskrá félagsins. Í erindinu kom fram að um væri að ræða stað sem væri afskekktur með fáa notendur og að það væri mat félagsins að hefðbundnar markaðsforsendur ættu ekki við á svæðinu og því væri óskað eftir heimild til að ákvarða tengigjöld með þeim hætti að þau yrðu lægri en annars staðar í ljósleiðarakerfi Húnanets ehf.

Fjarskiptastofa taldi tilefni að afla frekari upplýsinga frá Húnaneti ehf. til að geta lagt mat á umfang og inntak á undanþágubeiðni félagsins. Með erindi, dags 11. mars 2026, sendi Fjarskiptastofa tilteknar spurningar til Húnanets ehf. sem óskað var svara við. Svör Húnanets ehf. við spurningum stofnunarinnar, ásamt sjónarmiðum til stuðnings undanþágubeiðninni, bárust með erindi dags. 27. apríl 2026.

Fjarskiptastofa hefur tekið saman skjal sem hefur að geyma yfirlit yfir lagumhverfi málsins, spurningar stofnunarinnar og svör Húnanets ehf. við þeim, ásamt samantekt á sjónarmiðum félagsins.

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það frummat Fjarskiptastofu að rök standi til þess að samþykkja undanþágubeiðni félagsins.

Í ljósi þess að undanþágubeiðni Húnanets ehf. er fyrsta erindi sem Fjarskiptastofu berst um beitingu heimildar samkvæmt 38. gr. a. í lögum um fjarskipti nr. 70/2022 og stofnuninni er það ekki ljóst, á þessu stigi, hvaða aðilar gætu mögulega átt lögvarða hagsmuna að gæta varðandi afgreiðslu beiðninnar, telur Fjarskiptastofa rétt að efna til opins samráðs um hana.

Fyrirhugað er að birta allar athugasemdir umsagnaraðila í heild sinni, nema að fram komi rökstuddar óskir um trúnað afmarkaðra upplýsinga. Að loknum samráðsfresti hyggst Fjarskiptastofa meta hvort og þá hvaða athugasemdir umsagnaraðila taka þurfi afstöðu til, m.a. út frá aðildarstöðu viðkomandi umsagnaraðila og efni athugasemda hans, þ.e. hvort þær eru almenns eðlis eða varði sérstaklega atriði undanþágubeiðninnar.

Frestur til að skila athugasemdum er veittur til 18. ágúst nk. 

Samráðsskjalið (pdf)