Hoppa yfir valmynd

Samráð – reglur um viðmið við kostnaðarskiptingu vegna samnýtingar á aðstöðu til fjarskiptastarfsemi

Fréttasafn
11. apríl 2025

Samráð – reglur um viðmið við kostnaðarskiptingu vegna samnýtingar á aðstöðu til fjarskiptastarfsemi

Lagaákvæði sem setur sértækar reglur um réttindi og skyldur fjarskiptafyrirtækja í tengslum við aðgang og samnýtingu á aðstöðu til fjarskiptastarfsemi á sér nokkuð langa sögu í evrópskum fjarskiptaregluverki.  Í eldri fjarskiptalögum nr. 81/2003 var ákvæðið að finna í 25. gr. laganna. Þótt sjaldan hafi reynt á þetta ákvæði á íslenskum fjarskiptamarkaði verður að telja ákvæðið eitt það mikilvægasta sem leiðir af samevrópsku fjarskiptaregluverki, en víða í Evrópu eru ágreiningsmál milli fjarskiptafyrirtækja um aðgang og samnýtingu á aðstöðu talsvert tíð.

Í gildandi fjarskiptalögum nr. 70/2022 er þetta ákvæði að finna í 35. gr. laganna. Rétt er að geta þess að ákvæðið gildir óháð markaðsstyrk fjarskiptafyrirtækis og er því aðgangsrétturinn í eðli sínu almennur, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Ein ástæða þess að lítið hefur reynt á þetta almenna ákvæði um aðgang að aðstöðu kann að vera að Míla hf. (og forverar þess félags) hefur á síðustu áratugum byggt upp víðtæka aðstöðu til fjarskiptastarfsemi á öllu landinu hvort sem um er að ræða, þéttbýli eða strjálbýli, en slík aðstaða hefur verið bundin aðgangs- og verðskrárkvöðum um árabil.

Ákvæði gildandi laga er áþekkt eldra ákvæði, en þó er um að ræða tiltekna eðlisbreytingu. Í tíð eldri laga var það tekið fram með berum orðum að Fjarskiptastofa (áður Póst- og fjarskiptastofnun) leysti úr ágreiningi um skiptingu kostnaðar við samnýtingu á fjarskiptaaðstöðu. Í gildandi ákvæði segir hins vegar í 4. mgr. 35. gr. að Fjarskiptastofu sé heimilt að setja reglur um kostnaðarskiptingu við samnýtingu á aðstöðu, eigna eða framkvæmda samkvæmt ákvæðinu. Í ljósi eftirlitshlutverks Fjarskiptastofu sem hefur umsjón með framkvæmd fjarskiptalaga, sbr. 4. gr. laganna, svo og að stofnuninni sé heimilt að setja reglur um kostnaðarskiptingu telur stofnunin að hún sé þess bær að skera úr ágreiningi milli fjarskiptafyrirtækja um skiptingu kostnaðar vegna samnýtingar á aðstöðu.

Þetta fyrirkomulag gerir því ráð fyrir ákveðinni fyrirfram reglusetningu sem hægt er að byggja niðurstöðu á. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að setja reglur um skiptingu kostnaðar sem tekur á öllum mögulegum álitaefnum sem upp geta komið við mat á kostnaði, heldur hljóta atvik og aðstæður í hverju máli fyrir sig að hafa mikla þýðingu. Hins vegar telur Fjarskiptastofa að hægt sé að leggja nokkurs konar meginlínur um skiptingu kostnaðar sem ættu við í flestum tilvikum, kannski með einhverjum blæbrigðum.

Fjarskiptastofa freistar þess nú að setja fram slíkar almennar reglur um skiptingu kostnaðar vegna samnýtingar á aðstöðu fjarskiptafyrirtækja til fjarskiptastarfsemi. Tekið skal fram að þetta eru eingöngu viðmið um skiptingu kostnaðar en ekki bindandi reglur. Þannig hafa fjarskiptafyrirtæki fullt frelsi til að víkja frá reglunum nái þau samkomulagi um það. Komi hins vegar upp ágreiningur milli aðila getur annar hvor eða báðir aðilar skotið honum til úrlausnar Fjarskiptastofu, en þá er gert ráð fyrir að viðmiðin séu bindandi fyrir þá. Þau geta hins vegar ekki verið bindandi fyrir Fjarskiptastofu sem getur þurft að byggja niðurstöðu sína á sjónarmiðum og gögnum sem reglurnar fjalla ekki um. Almenna reglan verður hins vegar sú að niðurstaða í ágreiningsmáli fylgi þeim meginlínum sem lagðar hafa verið fram. Þá telur Fjarskiptastofa rétt að taka fram að sé ágreiningsmáli skotið til úrlausnar stofnunarinnar sé horft svo á að samningaumleitanir milli aðila séu fullreyndar og að öllu jöfnu komi ekki til sáttaviðræðna milli aðila undir handleiðslu stofnunarinnar á upphafsstigum mála, nema að Fjarskiptastofa telji sérstakt tilefni til þess og það metið vænlegt til árangurs.

Hagaðilum gefst nú tækifæri til að rýna og gera mögulegar athugasemdir við drög Fjarskiptastofu að reglum um viðmið við kostnaðarskiptingu vegna samnýtingar á aðstöðu til fjarskiptastarfsemi. Frestur til að skila athugasemdum er veittur til 16. maí 2025.

Nánari upplýsingar veitir Björn Geirsson (bjorn@fst.is) sé þess óskað.


Drög að reglum