Samningur milli utanríkisráðuneytisins og Fjarskiptastofu um starfsemi CERT-IS
Samningur milli utanríkisráðuneytisins og Fjarskiptastofu um starfsemi CERT-IS
Í dag var undirritaður samningur milli utanríkisráðuneytisins og Fjarskiptastofu um að utanríkisráðuneytið láti netöryggissveitinni CERT-IS í té aðgang að vinnurými og öruggri aðstöðu sem gerir netöryggissveitinni CERT-IS kleift að eiga samskipti við erlendar netöryggissveitir og aðra aðila með öruggum hætti sem m.a. uppfyllir kröfur NATO um slík upplýsingaskipti. Netöryggissveitin CERT-IS mun verða hýst í húsnæði utanríkisráðuneytisins, en verða eftir sem áður hluti af starfsemi og skipulagi Fjarskiptastofu.
Fjarskiptastofa telur að samningurinn geti leitt af sér aukin tækifæri til eflingar netöryggis í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Erlend samskipti um netöryggismál við helstu samstarfsaðila okkar verða með öruggum hætti eins og gengur og gerist meðal nágrannaþjóða okkar og þá ekki síst við Norðurlöndin. Samningur um upplýsingaskipti milli Fjarskiptastofu og utanríkisráðuneytisins var undirritaður árið 2021 og hefur reynsla af honum verið góð, báðum aðilum til gagns og málaflokki netöryggis til framdráttar.
Fjarskiptastofa er það stjórnvald hérlendis sem fer með stjórnsýslu og framkvæmd netöryggismála m.a. í samræmi við lög nr. 78/2019 um net- og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða. Innan stofnunarinnar fer starf tengt netöryggi aðallega fram í tveimur nokkuð jafnstórum einingum; hjá netöryggissveitinni CERT-IS og hjá stafrænu öryggi, en stafrænt öryggi verður hér eftir sem hingað til hýst innan Fjarskiptastofu.
Óhætt er að segja að við stöndum á krossgötum í alþjóðlegu tilliti. Ríki Vestur-Evrópu huga í æ ríkari mæli að öryggis- og varnarmálum og þar með talið netöryggismálum. Ísland er þar ekki undanskilið.
Hafa verður í huga sérstakt eðli netógnarinnar. Grundvöllur netvarna ríkja hvílir m.a. á samfélagslega mikilvægum almennum fyrirtækjum og stofnunum hérlendis sem gera virkar ráðstafanir til að tryggja netöryggi sitt með fyrirbyggjandi aðgerðum m.a. í samræmi við netöryggisregluverkið. Netvarnir ríkja hvíla því ekki síður á þessum aðilum en varnarmálatengdum aðilum. Borgaralegt netöryggisregluverk er því í raun grundvöllur varnarmálatengdrar nálgunar netöryggis. Hlutverk ríkisins er m.a. að tryggja að skilgreindir mikilvægir innviðir innleiði í raun viðeigandi fyrirbyggjandi aðgerðir í samræmi við netöryggisregluverkið. Slíkt eftirlit er m.a. hlutverk stafræns öryggis innan Fjarskiptastofu.
Myndin hér að ofan var tekin við undirritun samningsins. Efst til vinstri er Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri CERT-IS, Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Bjarki Þórsson lögfræðingur.
Samninginn undirrituðu Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Fjarskiptastofu (til vinstri) og Jónas G. Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu.