Hoppa yfir valmynd

Opið samráð vegna aðgerða gegn símtala- og smáskilaboðasvikum

Fréttasafn
25. mars 2025

Opið samráð vegna aðgerða gegn símtala- og smáskilaboðasvikum

Fjarskiptastofa efnir hér til opins samráðs vegna tillagna um aðgerðir gegn svikastarfsemi með óumbeðnum símtölum og smáskilaboðum sem beinast að notendum íslenskra símanúmera.

Frá því á fyrri hluta síðasta árs hefur vinnuhópur á vegum Fjarskiptastofu með fulltrúum hennar og fulltrúum frá fjarskiptafélögunum þremur, Nova, Símanum og Vodafone hist reglulega og rætt mögulegar leiðir til að vernda íslenska númeraskipulagið og notendur íslenskra símanúmera. Tilefnið var mikil fjölgun svikastarfsemi síðustu árin þar sem íslensk símanúmer koma við sögu.

Afrakstur þessarar vinnu hefur Fjarskiptastofa tekið saman í þremur skjölum sem fylgja hér með "Um svik í fjarskiptum", "Breytingar á reglum um fyrirkomulag númerabirtingar" og „Breytingar á verklagsreglum".

Þau úrræði sem lögð eru hér til  eru í grófum dráttum eftirfarandi:

  • Varðandi smáskilaboð þá munu fjarskiptafélögin stöðva framvegis smáskilaboð frá íslensku farsímanúmeri komi það inn um erlend samtengiskil í stað innlendra samtengiskila. Þá geta fjarskiptafélögin einnig haft samráð um að stöðva smáskilaboð þegar þau fara ekki eftir þekktu tæknilegu sendiferli þess sendanda sem þau eiga að stafa frá.
  • Hert er á reglum um númerabirtingu almennra íslenskra talsímanúmera þá hvenær hún eigi ekki að eiga sér stað þ.e. þegar hringt er erlendis frá. Einnig munu fjarskiptafélögin sjálf geta ákveðið að afnema númerabirtingu farsímanúmera í varúðarskyni eða beitt annars konar varúðarúrræðum þegar uppruni er óljós.
  • Þá munu fjarskiptafélögin, eins og áður, geta stöðvað símtöl og smáskilaboð frá tilteknum símanúmerum/röðum tímabundið ef vöktunarkerfi þeirra greina óeðlilegan fjölda eða óeðlilegt mynstur sem beinist að íslenskum símanúmerum.
  • Við þær ráðstafanir sem getið er hér að framan munu fjarskiptafélögin m.a. geta stuðst við vöktunarkerfi sín sem þau hafa til að fylgjast með umferð og hringimynstri um fjarskiptakerfi sín.

 

Það er von Fjarskiptastofu að með þessum samræmdu ráðstöfunum verði enn frekar hægt að fækka möguleikum óprúttinna aðila til að svíkja fé af eða blekkja almenning hér á landi með símtölum eða smáskilaboðum.

Fjarskiptastofa óskar eftir sjónarmiðum allra sem telja sig hafa hagsmuni tengda þessu málefni. Þess er óskað að umsagnir berist FST eigi síðar en mánudaginn 14. apríl 2025.
Tekið er við skriflegum umsögnum á netfangið: fjarskiptastofa(hjá)fjarskiptastofa.is

Skjöl:
1. Um svik í fjarskiptum - samantekt.
2. Breytingar á reglum um fyrirkomulag númerabirtingar.
3. Breytingar á verklagsreglum.