Hoppa yfir valmynd

Lokun 2G og 3G – Getur mögulega skert aðgengi að neyðarnúmerinu 112

Fréttasafn
19. desember 2025

Lokun 2G og 3G – Getur mögulega skert aðgengi að neyðarnúmerinu 112

Undanfarið hefur staðið yfir útfösun 2G og 3G farsímakerfa hér á landi. Ætlunin var að NOVA, Sýn og Síminn lykju útfösuninni um áramótin 2025/2026. Samkvæmt upplýsingum Fjarskiptastofu hafa Sýn og NOVA lokið útfösun 2G. Félögin eru langt komin með lokun 3G. NOVA og Sýn eru í biðstöðu með 3G þjónustu sem enn er í boði á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi og verður henni haldið opinni næstu mánuði. Síminn hefur tilkynnt að félagið hyggist ljúka útfösun 2G fljótlega eftir áramót, en að útfösun 3G geti tekið lengri tíma, mögulega fram á mitt næsta ár.

Fjarskiptastofa hefur fylgst með framgangi útfösunarinnar hjá fjarskiptafélögunum og heldur úti upplýsingasíðu um stöðu hennar á vef sínum. Eru notendur hvattir til að kynna sér hana. Undanfarnar vikur og mánuði hafa hins vegar komið fram nýjar upplýsingar um að í sumum tilvikum geti símtæki notenda ekki náð í 112 af tæknilegum ástæðum eftir lokun 2G/3G netanna. 

Stofnunin telur að þetta sé alvarlegt öryggismál sem þó snertir aðeins takmarkaðan hóp notenda. Á miðju ári 2025 voru um 560.000 farsímaáskriftir virkar hér á landi. Á þessari stundu hefur Fjarskiptastofa upplýsingar um að þessi staða geti átt við nokkur þúsund notendur, mismarga eftir fjarskiptafélagi.

Upplýsingarnar sem Fjarskiptastofa hefur nú undir höndum benda einkum til tveggja tæknilegra atriða:

  • VoLTE er ekki virkt eða til staðar á símanum (”án-VoLTE”): Ef 4G/5G sími er ekki með virka VoLTE-þjónustu og engin 2G/3G net eru aðgengileg, þá geta símtöl (þar með talin símtöl í 112) í versta falli ekki tengst.
  • Í sumum tilfellum reynir 4G sími ekki að koma neyðarsímtali á yfir 4G heldur fer sjálfkrafa yfir á 2G/3G til að afgreiða neyðarsímtalið. Þetta vandamál er kallað CSFB (Circuit Switch Fallback) og orsakast almennt af úreltum hugbúnaði í símtækinu eða úreltu símtæki.

 

Fjarskiptafélögin hafa greint, eftir bestu getu, þessa stöðu hjá viðskiptavinum sínum sem tengjast kerfum þeirra. Þau hafa ítrekað sent upplýsingar (SMS, símtöl, tölvupósta og jafnvel bréf) til viðskiptavina sinna sem eru í þessari stöðu. Margir hafa brugðist vel við, en þó eru enn þúsundir áskrifenda í þeirri stöðu að 112 símtöl munu mögulega ekki skila sér eftir lokun 2G og 3G.

Rétt er að geta þess að þjónusta 112 er þannig útfærð lögum samkvæmt að símtækið leitar að einhverju tiltæku farneti til að afgreiða 112 símtal. Ef áskriftarnet notanda er ekki tiltækt þá velur símtækið annað net, sé það tiltækt.

Á þeim svæðum sem fjarskiptafélögin hafa ekki lokað 3G neti sínu munu því 112 neyðarsímtöl allra notenda áfram geta farið um áskriftarnet viðkomandi með óbreyttum hætti. Þar sem slökkt hefur verið á 2G og 3G netum Sýnar og NOVA ættu símtöl notenda þeirra í 112 að geta flust yfir á 3G net Símans í svo kallað neyðar-reiki (e. Emergency Roaming) meðan 3G net Símans er enn starfrækt.

Við 112‑reiki á 2G/3G kerfum annars fjarskiptafélags, sem kallað er neyðar-reiki, er staðfest að lengri tíma geti tekið að ná sambandi. Þessi tími getur verið frá nokkrum sekúndum upp í tugi sekúndna í versta tilfelli. Það getur mögulega lýst sér þannig að hringitónn heyrist ekki á þessu tímabili.

Hvað geta notendur gert núna?

Langflestir notendur munu ekki verða fyrir áhrifum. Engu að síður hvetur Fjarskiptastofa almenning og fyrirtæki til að kanna stöðuna tímanlega, sérstaklega hvað varðar eldri símtæki, tæki sem ekki hafa verið uppfærð eða tæki keypt utan EES svæðisins og því ekki tæknilega útfærð til notkunar hérlendis.

  • Athuga hvort VoLTE sé virkt í símanum (stillingar heita mismunandi eftir framleiðendum).
  • Uppfæra stýrikerfi/hugbúnað símans og, ef við á, burðarnetsstillingar (carrier settings).
  • Kanna hvort tækið sé keypt utan EES svæðisins.
  • Bregðast hratt og vel við upplýsingum fjarskiptafélaganna þegar þau upplýsa að sími viðkomandi þarfnist uppfærslu eða endurnýjunar vegna ofangreindrar stöðu.
  • Hafa samband við fjarskiptafélag sitt ef vafi leikur á um stuðning eða stillingar tækis.
  • Alls ekki hringja í neyðarnúmerið 112 að tilefnislausu til að prófa virkni símans.

Farsæl útfösun 2G og 3G byggir á samstilltri nálgun fjarskiptafélaganna, notenda og stjórnvalda. Mikilvægt er að notendur hugi að ofangreindum atriðum. Fjarskiptastofa hvetur notendur til að deila þessum mikilvægu skilaboðum sem víðast.

Fjarskiptastofa leggur áherslu á að neyðarsímtöl almennings skili sér undantekningarlaust til neyðarþjónustuaðila. Fjarskiptastofa mun áfram fylgjast náið með framvindunni, kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum og beita þeim úrræðum sem lög heimila, eftir því sem tilefni er til. Til skoðunar er að efla samstarf fjarskiptafélaganna, m.a. hvað varðar tæknilega tilhögun varðandi 3G net Símans, á meðan á lokun netanna stendur.

Stofnunin mun jafnframt áfram miðla upplýsingum og leiðbeiningum til almennings og fyrirtækja á vef sínum jafnóðum og þær liggja fyrir.