Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta ársins 2023 komin út
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta ársins 2023 komin út
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir fyrri hluta ársins 2023. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.
Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins fyrir fyrri hluta ársins 2023 má nefna:
Þróun fyrri ára innan talsíma heldur áfram þar sem bæði notendum og mínútum fækkar milli ára, áskrifendum að heimasíma fækkar um 9,5% milli ára og mínútum fækkar um 19,7%. Síminn og Vodafone eru stærstu fyrirtækin á markaði fyrir heimasíma með rúm 83% hlutdeild um mitt ár 2023.
Heildarfjöldi farsímaáskrifta fjölgar milli ára eða um 7,8%. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 545 millj. mínútna á fyrri hluta ársins 2023 en var fyrir sama tímabil árið á undan um 547 millj. mínútna og fækkar því fjöldi mínútna milli ára um 0,3%.
Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var tæp 27% milli ára og eins og undanfarin ár er aukningin í tengslum við innleiðingu á 4G og 5G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum eða 4G og 5G netbúnaði.
Internettengingum fjölgar lítillega milli ára, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum, um mitt ár 2023 voru ljósleiðaratengingar rúm 85% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 120 þús. tengingar.
Heildargagnamagn á fastaneti jókst um rúm 8% milli ára og er um 89% gagnamagnsins vegna niðurhals en 11% vegna upphals.
Áskrifendur með sjónvarp yfir IPTV voru 76.246 um mitt ár 2023, en voru 78.413 árið á undan og hefur því fækkað um tæp 3% frá árinu á undan.
Velta á fjarskiptamarkaði jókst á fyrri hluta ársins 2023, tekjur af heimasíma og aðrar tekjur fóru lækkandi en tekjur af fastaneti, farsímarekstri, gagnaflutningi og internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu og annarri fjölmiðlun farið hækkandi.
Fjárfesting á fjarskiptamarkaði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna lagningar ljósleiðara og farsímarekstri og gagnaflutningi og internetþjónustu og jókst fjárfesting frá árinu á undan.
Helstu stærðir á fjarskiptamarkaði má sjá hér í í töflu en hana er einnig er að finna í skýrslunni sjálfri.
Tölfræðiskýrslan í heild (pdf)