Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 komin út
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 komin út
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2025. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum, pakkaáskriftir og að síðustu veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.
Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins fyrir árið 2025 má nefna:
Þróun fyrri ára innan talsíma heldur áfram þar sem bæði notendum og mínútum fækkar milli ára, áskrifendum að heimasíma yfir VoIP fækkar um 8,2% milli ára og mínútum fækkar um 10,3%.
Heildarfjöldi farsímaáskrifta stendur í stað milli ára. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 1.071 millj. mínútna á árinu 2025 en var fyrir sama tímabil árið á undan um 1.079 millj. mínútna og fækkar því fjöldi mínútna milli ára um 0,8%.
Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var 7,6% milli ára.
Internettengingum fjölgar milli ára, aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum. Í lok árs 2025 voru ljósleiðaratengingar um 96% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 147 þús. tengingar en xDSL tengingar voru einungis um tæp 6 Þús.
Heildargagnamagn á fastaneti jókst um 2,8% milli ára og er um 88% gagnamagnsins vegna niðurhals en 12% vegna upphals.
Tölfræðiskýrslan í heild.
Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum.